Segir árás Tyrkja hafa verið „skipulagða ögrun“ Samúel Karl Ólason skrifar 25. nóvember 2015 12:43 Sergey Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands. Vísir/EPA
Sergey Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir árás Tyrkja á sprengjuflugvél Rússlands hafa verið „fyrirfram skipulagða ögrun“. Þá undrast hann að yfirlýsingar NATO og ESB hafi verið ætlað að styðja Tyrkja en ekki votta Rússum samúð á nokkurn hátt. Tyrkir segja flugvélina hafa komið inn fyrir lofthelgi sína í um 17 sekúndur, en fyrir það hafi þeir varað flugmennina við tíu sinnum á fimm mínútum. Rússar segja hins vegar að sprengjuvélin hafi aldrei farið inn í lofthelgi Tyrklands og að orrustuþotur Tyrkja hafi flogið inn í lofthelgi Sýrlands til að granda vélinni. Lavrov ræddi við utanríkisráðherra Tyrklands í dag og eftir fund þeirra ræddi hann við blaðamenn.Sjá einnig: Vígamenn felldu rússneskan hermann í björgunaraðgerð Hann tók skýrt fram að Rússar væru ekki á leið í stríð við Tyrkland vegna atviksins. „Við höfum efasemdir um að þetta hafi ekki verið viljaverk og teljum þetta hafa verið fyrirfram skipulagða ögrun,“ er haft eftir Lavrov á vef Washington Post. Ennfremur sagði Lavrov að Rússar ættu ekki í deilum við tyrknesku þjóðina, heldur leiðtoga hennar.Sjá einnig: Segir leiðtoga Tyrklands stuðla að íslam-væðingu landsins Á vef TASS fréttaveitunnar, sem rekin er af rússneska ríkinu, segir að utanríkisráðherra Tyrklands hafi sagt Lavrov að Tyrkir hafi ekki vitað að um rússneska vél væri að ræða. Flugher Sýrlands er einnig virkur á svæðinu.
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Sjá meira