Bíó og sjónvarp

Grínast með veggspjald Star Wars

Samúel Karl Ólason skrifar
Veggspjald fyrir mynd sem nákvæmlega enginn vill sjá.
Veggspjald fyrir mynd sem nákvæmlega enginn vill sjá.
Tveimur dögum eftir að veggspjald nýjustu Star Wars myndarinnar var birt hafa margir grínast með myndina og breytt henni. Sem dæmi er búið að bæta Batman inn á eina mynd og allir karakterar gerðir að Jar Jar Binks á annarri.

Þar að auki hafa fjölmargir sett andlit sín inn á myndirnar.

Framleiðendum myndarinnar hefur tekist að byggja upp gífurlega spennu fyrir útgáfu hennar fyrir jól. Með því að birta hægt og rólega litla búta af upplýsingum og myndefni hafa þeir haldið aðdáendum söguheimsins og öðrum, föngnum um margra mánaða skeið.

Ljóst er þó að þeir þurfa að gera það í nokkur ár í viðbót, þar sem von er á fimm myndum til viðbótar.

Karakterarnir úr Seinfeld í Sein Wars.
Dawn of Justice.
Glímukappinn John Cena.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×