Innlent

Útlendingastofnun telur ekki ástæðu til að endurskoða brottvísanirnar

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Kristín Völundardóttir forstjóri Útlendingastofnunar segir stofnunina fara að lögum og reglum. Á meðan sé ekki forsenda til að endurskoða ákvarðanir um brottvísanir.
Kristín Völundardóttir forstjóri Útlendingastofnunar segir stofnunina fara að lögum og reglum. Á meðan sé ekki forsenda til að endurskoða ákvarðanir um brottvísanir. VÍSIR/SKJÁSKOT
Forstjóri Útlendingastofnunar segir að úrskurðir um að veita annars vegar albanskri, og hins vegar sýrlenskri fjölskyldu ekki hæli hér á landi, verði ekki endurskoðaðir. Ekki sé forsenda til að endurskoða ákvarðanir sem byggja á lögum sem Alþingi setur.

Albönum sem sækja um hæli hér á landi hefur fjölgað gríðarlega undanfarið. Alls hafa 246 einstaklingar sótt um hæli það sem af er ári, en þar af eru 92, eða næstum fjortíu prósent frá Albaníu. Enginn þessara níutíu og tveggja albana hefur aftur á móti fengið hæli hér á landi. Öllum þeirra umsóknum hefur verið synjað það sem af er ári. Sama var uppi á teningnum í fyrra. 

„Aðstæður í Albaníu eru þannig að þetta er tiltölulega friðsælt lýðræðisríki. Þar er ekki ógnarstjórn og fólk verður ekki fyrir ofsóknum. Þannig að meginstefnu til þá hefur fólk ekki verið að fá hæli,“ segir Kristín Völundardóttir forstjóri Útlendingastofnunar.

Hátt í tíu þúsund manns hafa nú ritað nafn sitt á undirskriftarlistarlista þar sem þess er krafist að fimm manna albönsk fjölskylda fái að setjast að hér á landi, en þau fengu þær fréttir fyrir helgi að beiðni þeirra um hæli hefði verið hafnað.

„Það eru fleiri albanskar fjölskyldur sem hingað hafa komið og eru hérna í hælisleit. Þannig þetta er ekki ein fjölskylda sem að hér er verið að ræða um. Það er í rauninni öll albanska þjóðin sem að þarna gæti átt undir,“ segir Kristín.

Öllum hælisleitendum stendur til boða að kæra úrskurði þar sem þeim hefur verið synjað um hæli en að óbreyttu mun stofnunin ekki endurskoða mál albönsku fjölskyldunnar.

„Við teljum okkur hafa farið að lögum og alþjóðareglum í afgreiðslu þessa máls eins og annarra,“ segir Kristín.

Þá var Sýrlenskum hjónum með tvö börn um helgina synjað um efnislega meðferð á umsókn um hæli hér á landi, þar sem þau eru nú þegar með dvalarleyfi í Grikklandi. Kristín segir að einstaklingar sem fengið hafa vernd njóti að flestu leyti sömu réttinda og grískir ríkisborgarar. Því sé afstaða Útlendingastofnunar að það sé í lagi að senda fjölskylduna til baka til Grikklands.  

Ákvörðunin hefur vakið töluverða athygli, ekki síst vegna þess að Ólöf Nordal innanríkisráðhera hefur lýst því yfir að ekki sé tryggt að senda flóttamenn til Grikklands í ljósi ástandsins þar. Þá sagðist Unnur Brá Konráðsdóttir formaður allsherjarnefndar ekki trúa öðru en að málið yrði skoðað sérstaklega. Kristín segir enga ástæðu til að endurskoða málið.

„Við förum eftir lögum og reglum hjá Útlendingastofnun sem Alþingi setur okkur. Það er ekki forsenda til að endurskoða ákvörðun sem byggir á þeim lögum og reglum,“ segir Kristín Völundardóttir forstjóri Útlendingastofnunar. 


Tengdar fréttir

Landamæravörður

Þrjú albönsk börn á Íslandi fá ekki skólavist. Þau eru hælisleitendur og samkvæmt Útlendingastofnun var "þjónustuúrræðið fullnýtt“.

Forstjóri Útlendingastofnunar: "Þetta voru mistök hjá okkur“

Samtökin, Barnaheill - save the children á Íslandi, segja engan vafa á því að verið sé að brjóta barnasáttmála sameinuðu þjóðanna með því að veita börnum hælisleitenda ekki skólavist, en á annan tug barna í slíkum aðstæðum eru nú utan skóla hér á landi. Forstjóri Útlendingastofnunar segir stofnunina ekki anna eftirspurn.

Einn daginn berst bréf

"Það er allt miklu betra núna. Ég eignast vini og leik við þá. Svo læri ég líka,“ sagði Petrit í sérstaklega fallegri kvöldfrétt Stöðvar 2.

Fjölskyldan fékk synjun um hæli

Albönsk fjölskylda þarf að fara úr landi sem fyrst. Börnin eru nýbyrjuð í skóla í Laugarneshverfinu og eru alsæl. Foreldrarnir segjast ekki þurfa fjárhagsaðstoð, bara leyfi til að vinna og búa á Íslandi.

Albönsku börnin komin í skóla: Mikil gleði fyrsta skóladaginn

Faðir þriggja albanskra barna, sem hingað til hafa ekki fengið skólavist í íslenskum grunnskólum, segir daginn í dag afar ánægjulegan, en í morgun byrjuðu börn hans loksins í skólanum. Yngsti sonur hans segir skemmtilegast að læra stærfræði og leika sér við aðra krakka.

Gjafir og góðvild bárust ekki systkinum

Þau Laura, Janie og Petrit geta öll hafið skólagöngu á Íslandi innan fárra daga en eiga ekkert til skólagöngunnar. Fjölmargir vildu leggja börnunum lið og gefa þeim gjafir til að létta undir með þeim.

Skólastjóri Laugalækjarskóla býður systurnar Lauru og Janie velkomnar

Útlendingastofnun hefur haft samband við Laugalækjarskóla og Laugarnesskóla og beðið um skólavist fyrir systkinin, Lauru, Janie og Petrit. Björn M. Björgvinsson skólastjóri Laugalækjarskóla staðfestir þetta. "Þær eru búnar að fá skólavist, það á aðeins eftir að ganga frá nokkrum formsatriðum, við þurfum örfáa daga til þess að undirbúa þær fyrir skólann,“ segir hann og segir skólann munu taka vel á móti þeim.

Börn hælisleitenda fá ekki skólavist

Þau Laura fimmtán ára, Janie þrettán ára og Petrit níu ára komu til Íslands í byrjun júní. Þau spyrja foreldra sína daglega hvenær þau fái að fara í skóla. Útlendingastofnun sótti ekki um skólavist fyrir systkinin þrátt fyrir ítrekaðar áminningar foreldra barnanna, lögfræðinga og umboðsmanns barna.

Tólf ekki enn í skóla

Útlendingastofnun óskaði ekki eftir þjónustu frá Hafnarfirði vegna hælisleitenda í nýrri móttökustöð í Bæjarhrauni þar til í síðustu viku. Nánar tiltekið 1. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×