Í aðgerð án nauðsynlegra upplýsinga Svarar Hávarðsson skrifar 2. október 2015 08:00 Konur með þroskahömlun gangast undir ófrjósemisaðgerðir á Íslandi en fá ekki nægar upplýsingar til að vita að aðgerðin er varanleg og óafturkræf. nordicphotos/getty
Fólk með þroskahömlun býr við verulega skert sjálfræði þar sem forræðishyggja nær til flestra þátta daglegs lífs, fjármála og persónulegra sambanda. Ófrjósemisaðgerðir eru framkvæmdar á konum með þroskahömlun án þess að þær geri sér grein fyrir að aðgerðin er varanleg. Ný rannsókn Kristínar Björnsdóttur, Ástríðar Stefánsdóttur og Guðrúnar V. Stefánsdóttur, dósenta við menntavísindasvið Háskóla Íslands, dregur þetta m.a. fram, en Kristín heldur erindi um rannsóknina um sjálfræði fólks með þroskahömlun á ráðstefnunni Menntakviku í Háskóla Íslands í dag. Rannsóknin var framkvæmd á árunum 2011 til 2015 og er byggð á viðtölum við um 50 einstaklinga með þroskahömlun á aldrinum 26 til 66 ára – bæði einstaklings- og hópviðtölum.Kristín BjörnsdóttirEldri konurnar í hópnum höfðu undirgengist ófrjósemisaðgerð ungar; þegar þær voru á stofnunum og aðgerðin einfaldlega hluti af veruleika þroskahamlaðra kvenna. Hins vegar voru dæmi um yngri konur í hópnum sem höfðu undirgengist ófrjósemisaðgerð, og þá vegna þrýstings frá fjölskyldu sinni. Dæmi eru um að aðgerðir höfðu farið fram áður en stúlkurnar náðu 25 ára aldri, sem er ólöglegt. Ljóst er einnig að vegna skorts á upplýsingagjöf gerðu þær sér ekki grein fyrir hvað aðgerðin þýddi fyrir þær í raun og veru. „Við höfum áhyggjur af því að upplýsingar um aðgerðirnar, eða aðra kosti eins og t.d. getnaðarvarnir, séu ekki aðgengilegar þessum hópi fólks. Það er alveg ljóst að þær gerðu sér ekki grein fyrir hvað felst í þessum aðgerðum. Enginn getur tekið upplýsta ákvörðun ef hann hefur ekki upplýsingarnar,“ segir Kristín. Eins er ekki um kynfræðslu að ræða fyrir þennan hóp fólks og vegna afskipta annars fólks þá útilokar það oft og tíðum aðgang þeirra að ástar- eða vinasamböndum. Vegna þessa leiddu viðtöl í ljós að hluti hópsins var ekki meðvitaður um að fólk með þroskahömlun gæti verið samkynhneigt. „Já, eða að ástarsambönd séu í boði fyrir fatlað fólk yfirleitt,“ segir Kristín. Á sama tíma og þessar staðreyndir liggja fyrir eru ófrjósemisaðgerðir á körlum með þroskahömlun nær óþekktar og enginn af þeim 16 körlum sem talað var við vegna rannsóknarinnar hafði undirgengist slíka aðgerð. Spurð um þetta tiltekna atriði segir Kristín það athyglisvert hvað aðgerðirnar eru kynbundnar, en í fræðunum hefur því verið haldið fram að þessi aðgerð hafi verið gerð til að halda konunum frá kynferðislegu ofbeldi. „Margar af konunum sem við töluðum við höfðu orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi eða áreiti, og það er okkar niðurstaða að eitt af því sem varð til þess að þessar konur voru beittar kynferðislegu ofbeldi var að sá sem braut á þeim vissi af því að þær höfðu undirgengist aðgerðirnar,“ segir Kristín. En rannsókn Kristínar sýnir margt fleira. Allir sem rannsóknin náði til höfðu, í meiri eða minni mæli, verið í þeirri aðstöðu að sjálfræði þeirra var skert. „Það nær til allra daglegra athafna, fjármála, hvar þú býrð, með hverjum þú býrð, hvað þú borðar. Það eru alls konar ákvarðanir teknar, þegar þú býrð með hópi af fólki, á forsendum hópsins en ekki einstaklinganna. Þú þarft að gefa upp þínar tómstundir af því að það hentar öðrum en þér,“ segir Kristín. Af ofansögðu er ljóst að mannréttindabrot gegn fólki með þroskahömlun eru daglegt brauð. Eitt grundvallaratriða samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er að það fái að taka ákvarðanir um sitt daglega líf og lifa sjálfstæðu lífi. „Þetta er eiginlega sá réttur sem þú hefur af því að þú ert manneskja, og ef við virðum manngildi þessa hóps þá verðum við líka að viðurkenna þennan rétt þeirra,“ segir Kristín en það er flestum kunnugt að þetta atriði snýr að velferðarkerfinu í landinu – félagsþjónustu sveitarfélaganna ekki síst. Kristín telur vandann felast í því að þjónustan er mjög stofnanavædd, og vegna fjárskorts er mannekla viðvarandi vandi víða þó að mikið af fagfólki leggi sig mjög fram. „Ég held að það þurfi að endurskoða skipulag sveitarfélaganna með sambýli og íbúðakjarna, hvort það er endilega besta leiðin. Það verða í fyrsta lagi að vera nægilega margir starfsmenn – en ég held að notandastýrð persónuleg aðstoð myndi fleyta okkur mjög langt, eða ef hægt væri að innleiða hugmyndafræði um sjálfstætt líf, sem snýst um að fatlað fólk stjórni sínu lífi sjálft og þeirri aðstoð sem það fær,“ segir Kristín.
Mest lesið „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Innlent Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Innlent Módelið svínvirkar fyrir marga en þó ekki alla Innlent Árásarmaðurinn í Minnesota handtekinn Erlent Fyrsta konan sem stýrir MI6 Erlent Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Innlent Gerðu árás á sjónvarpshúsið í miðri útsendingu Erlent Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti Innlent Lengdist um níu sentímetra og lærði að ganga upp á nýtt Innlent Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Innlent Fleiri fréttir Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Lágmarks lokanir í kringum Austurvöll á 17. júní Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Þref á þingi og ráðherra vill bregðast við hækkandi raforkuverði Björgunarsveitir leita Sigríðar áfram Lausir úr haldi grunaðir um líkamsárás á Akureyri Höfðu samband við frönsku lögregluna vegna andlátanna Ný skýrsla: Raforkuverð heimila hafi hækkað um ellefu prósent Verður verkefnastjóri viðburða og grasrótarstarfs hjá Viðreisn Bein útsending: Kynning á þróun raforkukostnaðar og áhrifum á notendur Hvorki bókun 35 né veiðigjöld á dagskrá í dag Módelið svínvirkar fyrir marga en þó ekki alla „Kærkomin ró“ yfir höfuðborgarsvæðinu „Svo bakkarðu upp að línu og þenur drusluna“ Umræða um bókun 35 taki ekki tíma frá öðrum málum Dvalarheimili klárt á Laugarvatni en ekkert gerist í stjórnkerfinu Sjá meira