Fótbolti

Þrenna frá Ronaldo í öruggum sigri Real | Öll úrslit kvöldsins

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ronaldo fagnar marki í kvöld.
Ronaldo fagnar marki í kvöld. vísir/getty
Real Madrid virðist komið á flug undir stjórn Rafel Benítez en eftir stórsigur á Espanyol í spænsku 1. deildinni um síðustu helgi pakkaði liðið Shakhtar Donetsk saman í Meistaradeildinni í kvöld, 4-0.

Eins og svo oft áður var Cristiano Ronaldo allt í öllu, en hann skoraði þrennu á 26 mínútna kafla í seinni hálfleik.

Portúgalinn ótrúlegi byrjaði á því að skora úr tveimur vítaspyrnum áður en hann fylgdi eftir skoti Marcelo sem var varið.

Karim Benzema skoraði fyrsta mark Real Madrid, en Shakhtar var manni færra frá 50. mínútu þegar Taras Stepanenko fékk rautt spjald.

Cristiano Ronaldo er nú búinn að skora 80 mörk í Meistaradeildinni og er þremur mörkum á undan Lionel Messi sem á leik með Barcelona gegn Roma á morgun.

Öll úrslit kvöldsins:

A-riðill

PSG - Malmö 2-0

1-0 Ángel di María (4.), 2-0 Edinson Cavani (61.).

Real Madrid - Shakhtar Donetsk 4-0

1-0 Karim Benzema (30.), 2-0 Cristiano Ronaldo (55. víti), 3-0 Cristiano Ronaldo (63. víti), 4-0 Cristiano Ronaldo (81.).

Rautt spjald: Taras Stepanenko, Shakhtar (50.).

B-riðill

PSV - Man. Utd 2-1

0-1 Memphis Depay (41.), 1-1 Hector Moreno (45.), 2-1 Luciano Narsingh (57.).

Wolfsburg - CSKA Mosvka 1-0

1-0 Julian Draxler (40.)

C-riðill

Benfica - Astana 2-0

1-0 Nicolas Gaitan (51.), 2-0 Konstaninos Mitroglou (62.).

Galatasaray - Atlético 0-2

0-1 Antoine Griezmann (18.), 0-2 Antoine (25.).

D-riðill

Man. City - Juventus 1-2

1-0 Giorgio Chillieni (57. sm.), 1-1 Mario Mandzukic (70.), 1-2 Álvaro Morata (81.).

Sevilla - Borussia Mönchengladbach 3-0

1-0 Kevin Gameiro (47. víti), 2-0 Ever Banega (66. víti), 3-0 Yevheniy Konoplyanka (84.).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×