Innlent

Árni Páll Árnason Samfylkingu: Fjárlagafrumvarp þeirra betur settu

Jakob Bjarnar skrifar
Árni Páll: Mikilvægast nú er að leysa úr húsnæðismálunum. Ríkisstjórnin er þar enn sem fyrr á hraða snigilsins.
Árni Páll: Mikilvægast nú er að leysa úr húsnæðismálunum. Ríkisstjórnin er þar enn sem fyrr á hraða snigilsins.
„Fjárlögin eru athyglisverð,“ segir Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar um ný fjárlög:

„Gríðarlegt svigrúm til að bæta úr eftir aðhald undanfarinna ára er ekki nýtt til uppbyggingar. Áberandi er að barnafjölskyldur, meðaltekjufólk, lífeyrisþegar og lágtekjufólk eru skilin eftir. Hækkuð laun valda því að meðaltekjufólk hrynur út úr öllum stuðningskerfum, barnabótum, vaxtabótum og fæðingarorlofi. Engin viðmiðunarmörk eru hækkuð svo nokkru nemi. Skattbreytingar nýtast bara þeim betur settu og lífeyrisþegar fá ekki að njóta þeirra lágmarkslauna sem almennt var samið um í vor. Ekkert nýtt í vegi eða aðra inniviði og ekki fjárfest í heilbrigði eða húsnæðismálum. Landspítalinn fær ekki fullnægjandi úrlausn. Margauglýst framlög til húsnæðismála eru svo lítil að þau munu hvergi duga fyrir 2.300 íbúðum. 1.600 milljónir í nýjar íbúðir er nær því að duga fyrir einum stigagangi. En það er gott að sjá að viðsnúningur er að eiga sér stað. Forgangsröðunin er bara skökk,“ segir Árni Páll. Og hann bætir við:

„Mikilvægast nú er að leysa úr húsnæðismálunum. Ríkisstjórnin er þar enn sem fyrr á hraða snigilsins. Lífskjör barnafjölskyldna á lágum og meðaltekjum halda áfram að dragast aftur úr nágrannalöndunum. Barna- og vaxtabætur eru orðnar láglaunabætur og vaxtabætur stefna nú í að verða fjórðungur, segi og skrifa fjórðungur, af því sem þær voru 2011. Lítil hreyfing á uppbyggingu hjúkrunarrýma og aldraðir og öryrkjar munu sitja eftir þegar lágmarkslaun fara upp í 300.000. Svigrúmið hefur allt verið nýtt með millifærslum til þeirra sem meira hafa.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×