Fluttur „nær dauða en lífi“ úr fangaklefa upp á spítala Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. júní 2015 11:41 Ríkharð Júlíus Ríkharðsson er einn af þremur sem ákærðir eru fyrir líkamsárás, frelsissviptingu og rán í Kópavogi í febrúar í fyrra. vísir/valli
Guðmundur St. Ragnarsson, verjandi Ríkharðs Júlíusar Ríkharðssonar, sem ákærður er fyrir líkamsárás, frelsissviptingu og rán í Kópavogi í fyrra, hefur kært meðferðina sem skjólstæðingur hans sætti í haldi lögreglu til ríkissaksóknara. Vísaði ríkissaksóknari málinu til embættis sérstaks saksóknara sem rannsakar það nú, að sögn verjandans. Forsaga málsins er að Ríkharð gaf sig fram við lögreglu vegna umræddrar árásar sem hann er ákærður fyrir ásamt tveimur öðrum, þeim Kristjáni Markúsi Sívarssyni og Marteini Jóhannssyni. Ríkharð var handtekinn og færður í fangaklefa á grundvelli þess að halda má fólki í sólarhring án gæsluvarðhaldsúrskurðar. Hann er sykursjúkur og lét lögreglu strax vita af sjúkdómnum og því að hann þyrfti tilskilin lyf vegna hans.Var í dái í marga daga Ríkharð fékk hins vegar ekki lyf á meðan hann var í haldi lögreglu og missti því meðvitund í fangaklefanum. Þar fannst hann og var fluttur „nær dauða en lífi“ upp á Landspítala þar sem hann var í dái í marga daga, eins og fram kom í málflutningsræðu verjandans síðastliðinn mánudag. Það var því ekki hægt að taka skýrslu af honum vegna meintrar líkamsárásar fyrr en 10 dögum eftir að hún átti sér stað. Þá kom jafnframt fram í málflutningsræðunni að Ríkharð hafi verið edrú síðan hann vaknaði úr dáinu. Líf hans hefði tekið miklum stakkaskiptum en hann býr nú í Danmörku þar sem hann fór í skóla og fékk vinnu í kjölfarið. Þá sé hann jafnframt farinn að umgangast börnin sín sem var ekki raunin fyrir umrædda árás. Á grundvelli þessara breyttu aðstæðna ákærða fór Guðmundur fram á það að Ríkharð yrði sýknaður og til vara að hann yrði dæmdur til vægustu refsingar sem yrði skilorðsbundin. Krafa verjandans byggði jafnframt á því að hann telur að gengisfella megi ákæruna í málinu að miklu leyti.Ósannað að maðurinn hafi verið sviptur frelsi sínu Gagnrýndi verjandinn meðal annars hversu illa ákæruvaldið mat þátt hvers og eins í ætlaðri árás og sagði að ekki væri rétt að tala um samverknað þremenninganna. Fyrir lægi í málinu að Kristján hefði verið „aðalmaðurinn“ og miklu nær hefði því verið að ákæra Ríkharð og Martein fyrir hlutdeild í meintum brotum. Væri því ekki hægt að leggja þátt þeirra alla að jöfnu í málinu. Þá sagði Guðmundur að ósannað væri að um frelsissviptingu hefði verið að ræða. Ákærðu hafi ekki haldið fórnarlambinu föngnu í marga klukkutíma, hann hefði ekki verið keflaður eða bundinn, honum hefði ekki verið gert að halda sig á afmörkuðu svæði og þá hafi honum ekki verið meinað að fara út úr íbúðinni. Guðmundur fór jafnframt yfir það Ríkharð hefði reynt að draga úr ofbeldinu sem hugsanlega átti sér stað í íbúðinni auk þess sem hann hefði beðið fórnarlambið afsökunar á því sem átti sér stað og sýnt iðrun fyrir dómi.
Tengdar fréttir Fluttur nær dauða en lífi á sjúkrahús Maður hlaut alvarlegan insúlínskort á meðan hann var í haldi lögreglu. Maðurinn segist hafa beðið um insúlínsprautu en ekki fengið. Lögmaður mannsins hyggst fara fram á að málið verði rannsakað en ekki hefur verið tekin ákvörðun um kæru. 12. mars 2014 08:00 Líkamsárás í Kópavogi: „Ég var allur í blóði og íbúðin eins og eftir stríðsástand” Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Kristjáni Markúsi Sívarssyni, Marteini Jóannssyni og Ríkharði Júlíusi Ríkharðssyni var framhaldið í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 12. júní 2015 11:57 Líkamsárás í Kópavogi: Ætlaði ekki að hringja á lögregluna heldur fremja sjálfsmorð Maður sem ráðist var á í febrúar í fyrra segist enn glíma við andleg og líkamleg eftirköst árásarinnar. 12. júní 2015 15:36 Vill Skeljagrandabróður eldri í fimm ára fangelsi Munnlegur málflutningur í málum ákæruvaldsins gegn Kristjáni Markúsi Sívarssyni, Marteini Jóhannssyni, Ríkharði Júlíusi Ríkharðssyni og tveimur 19 ára piltum hófst í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 22. júní 2015 13:45 Verjandi Kristjáns segir hann „hömlulausan” í neyslu Verjandi Kristjáns Markúsar Sívarssonar sagði í máflutningsræðu sinni í dag að skjólstæðingi sínum væri að fullu ljóst að hann fengi þungan dóm fyrir þau mál sem ákæruvaldið hefur höfðað gegn honum. 22. júní 2015 14:20 Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Innlent Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Erlent Mætti ekki í útför föður síns Erlent Fleiri fréttir Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Sjá meira
Fluttur nær dauða en lífi á sjúkrahús Maður hlaut alvarlegan insúlínskort á meðan hann var í haldi lögreglu. Maðurinn segist hafa beðið um insúlínsprautu en ekki fengið. Lögmaður mannsins hyggst fara fram á að málið verði rannsakað en ekki hefur verið tekin ákvörðun um kæru. 12. mars 2014 08:00
Líkamsárás í Kópavogi: „Ég var allur í blóði og íbúðin eins og eftir stríðsástand” Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Kristjáni Markúsi Sívarssyni, Marteini Jóannssyni og Ríkharði Júlíusi Ríkharðssyni var framhaldið í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 12. júní 2015 11:57
Líkamsárás í Kópavogi: Ætlaði ekki að hringja á lögregluna heldur fremja sjálfsmorð Maður sem ráðist var á í febrúar í fyrra segist enn glíma við andleg og líkamleg eftirköst árásarinnar. 12. júní 2015 15:36
Vill Skeljagrandabróður eldri í fimm ára fangelsi Munnlegur málflutningur í málum ákæruvaldsins gegn Kristjáni Markúsi Sívarssyni, Marteini Jóhannssyni, Ríkharði Júlíusi Ríkharðssyni og tveimur 19 ára piltum hófst í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 22. júní 2015 13:45
Verjandi Kristjáns segir hann „hömlulausan” í neyslu Verjandi Kristjáns Markúsar Sívarssonar sagði í máflutningsræðu sinni í dag að skjólstæðingi sínum væri að fullu ljóst að hann fengi þungan dóm fyrir þau mál sem ákæruvaldið hefur höfðað gegn honum. 22. júní 2015 14:20
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent