Innlent

Verjandi Kristjáns segir hann „hömlulausan” í neyslu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Stefán Karl Kristjánsson, lögmaður Kristjáns Sívarssonar.
Stefán Karl Kristjánsson, lögmaður Kristjáns Sívarssonar. vísir/vilhelm
Stefán Karl Kristjánsson, verjandi Kristjáns Markúsar Sívarssonar, sagði í máflutningsræðu sinni í dag að skjólstæðingi sínum væri að fullu ljóst að hann fengi þungan dóm fyrir þau mál sem ákæruvaldið hefur höfðað gegn honum og nú eru til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjaness.

Kristján er meðal annars ákærður fyrir fimm ofbeldisbrot, nokkra þjófnaði og fyrir brot á barnaverndarlögum með því að hafa hvatt 17 ára gamla stúlku til neyslu fíkniefna.

Neitar áskökunum um frelsissviptingar

Verjandinn reifaði afstöðu Kristjáns til sakarefnanna en alvarlegustu brotin sem hann er ákærður fyrir snúa að tveimur sérstaklega hættulegum líkamsárásum, annars vegar í Kópavogi og hins vegar í Vogum á Vatnsleysuströnd.

Í báðum tilfellum er einnig ákært fyrir frelsissviptingu auk þess sem ákært er fyrir rán í Kópavogi og ólögmæta nauðung og tilraun til fjárkúgunar í Vogunum.

Kristján hefur gengist við hluta af ákæruliðunum í báðum málunum en verjandi hans segir brotin falla undir ákvæði hegningarlaga um minniháttar líkamsárás. Þá neitar Kristján ásökunum um frelsissviptingar, rán og tilraun til fjárkúgunar. 



Er á meðferðargangi á Litla-Hrauni

Verjandi Kristjáns benti dómnum á að hann hefði síðast hlotið dóm fyrir ofbeldisbrot árið 2008. Hann hefði verið að standa sig vel í lífinu og verið edrú en svo fallið.

„Það þarf ekkert að draga dul á það að Kristján Markús í neyslu er erfiður og sérstaklega erfiður sjálfum sér. [...] Í neyslu er hann hömlulaus en ég hef lagt fram vottorð frá Litla-Hrauni um það að hann sé að vinna í sínum málum. Hann er á meðferðargangi og er að reyna að standa sig vel,” sagði Stefán Karl.

Þá benti hann á að Kristján Markús hefði setið í gæsluvarðhaldi frá 2. desember og hefði samþykkt alla gæsluvarðhaldsúrskurðina síðan þá.



Varð fyrir miklu áfalli þegar hann missti konu sína

„Hann veit að hann þarf að ná tökum á sjálfum sér og losna undan fíkniefnum. En hann féll, hann missti stjórn. [...] Hann losnaði svo úr gæsluvarðhaldi í ágúst og fór til Spánar. Þar varð hann fyrir miklu áfalli þegar hann vaknar við hliðina á konu sinni og hún er dáin. Kristján Markús er harður og hann hefur kannski ekki viljað leita sér aðstoðar vegna þeirra áfalla sem hann hefur orðið fyrir en hann er þó að reyna að standa sig núna,” sagði verjandinn.

Ákæruvaldið fer fram á fimm ára fangelsi yfir Kristjáni en Stefán Karl sagðist telja hæfilega refsingu þrjú til þrjú og hálft ár í fangelsi. Tók hann fram að þá væri „vel í lagt” og fór fram á að gæsluvarðhaldið kæmi til frádráttar.


Tengdar fréttir

Vill Skeljagrandabróður eldri í fimm ára fangelsi

Munnlegur málflutningur í málum ákæruvaldsins gegn Kristjáni Markúsi Sívarssyni, Marteini Jóhannssyni, Ríkharði Júlíusi Ríkharðssyni og tveimur 19 ára piltum hófst í Héraðsdómi Reykjaness í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×