Íslenski boltinn

Spá Fréttablaðsins og Vísis: FH verður Íslandsmeistari

Titlunum hefur ekki rignt yfir FH undanfarin tvö ár en nú verður breyting á, samkvæmt spánni.
Titlunum hefur ekki rignt yfir FH undanfarin tvö ár en nú verður breyting á, samkvæmt spánni. vísir/stefán
Fréttablaðið og Vísir telur niður í Pepsi-deild karla í knattspyrnu með árlegri spá sinni. Íslandsmótið hefst 3. maí og þar á Stjarnan titil að verja eftir að verða meistari í fyrsta skipti í sögu félagsins.

Fréttablaðið og Vísir spáir FH Íslandsmeistaratitlinum í Pepsi-deildinni í ár, en FH hefur farið í gegnum tvö síðustu tímabil titlalaust. Pressan er mikil í Hafnarfirðinum enda liðið gífurlega vel mannað. Sigurganga FH hefur verið með ólíkindum frá 2004, en liðið hefur síðan þá unnið Íslandsmeistaratitilinn sex sinnum og orðið bikarmeistari þrívegis.

Heimir Guðjónsson heldur áfram um stjórnartaumana hjá FH, en hann hefur þjálfað liðið síðan 2007. Hann gerði liðið að meisturum 2008, 2009 og 2012 auk þess sem hann vann bikarinn árið 2010. Heimir hefur verið hjá FH í fimmtán ár; sem leikmaður, fyrirliði, aðstoðarþjálfari og aðalþjálfari.

LÍKLEGT BYRJUNARLIÐ:
GRAF/GARÐAR
EINKUNNASPJALDIÐ

Vörnin: 5 stjörnur (af 5)

Sóknin: 5 stjörnur

Þjálfarinn: 5 stjörnur

Breiddin: 5 stjörnur

Liðsstyrkurinn: 5 stjörnur

Hefðin: 5 stjörnur

Davíð Þór Viðarsson, Atli Guðnason og Steven Lennon.myndir/fh
ÞRÍR SEM FH TREYSTIR Á

Davíð Þór Viðarsson: Fyrirliðinn og múrbrjóturinn í liðinu og einn allra besti miðjumaðurinn í deildinni. Davíð Þór er liðinu gífurlega mikilvægur í varnarleiknum þar sem hann er duglegur að stöðva sóknir andstæðinganna og svo kemur hann langt aftur til að setja sóknir FH af stað. Fyrirliðastaðan verður mikilvæg í sumar enda liðið stútfullt af atvinnumönnum og erlendum leikmönnum. Davíð verður að vera framlenging af Heimi inn á vellinum.

Atli Guðnason: Sóknarmaðurinn smái en knái skilaði tíu mörkum í fyrra og öðrum eins af stoðsendingum en samt vann FH ekki titilinn. Það helst vanalega í hendur að þegar hann spilar frábærlega eins og 2009 (20 leikir 10 mörk) og 2012 (22 leikir 12 mörk) verður FH meistari. Hann hefur átt það til dala annað hvert ár en það er ekki í boði í ár í baráttunni við KR og Stjörnuna.

Steven Lennon: Skoski framherjinn hefur sitt fyrsta heila tímabil með FH, en hann skoraði sex mörk í tíu leikjum fyrir liðið eftir að koma á miðju sumri í fyrra. Lennon hefur aldrei spilað heila leiktíð í Pepsi-deildinni. Hann kom fyrst 2011 á miðju sumri og bjargaði Frram frá falli, árið eftir fótbraut Jón Jónsson, núverandi samherji Lennons, Skotann á Laugardalsvelli og 2013 fór hann til Noregs. Hann á að baki 47 leiki og 19 mörk í efstu deild, en nú verður hann að sýna gæði sín og skora eins og framherji í einu besta liði landsins.

Flóki er kominn heim.mynd/fh
Nýstirnið: Kristján Flóki Finnbogason

Félagaskipti Kristjáns Flóka heim í FH voru erfið fyrir drenginn enda hafði hann samþykkt að ganga í raðir Breiðabliks. Hann hætti við áður en hann stakk penna við blað og samdi við uppeldisfélagið.

Flóki hefur stækkað mikið og styrkt síðan hann fór í atvinnumennsku. Í dag er hann stór og sterkur framherji sem getur spilað rullu stóra mannsins við hlið Stevens Lennon í framlínunni. Alvöru „target“-senter sem ætti að henta nýju 4-4-2-kerfi Heimis Guðjónssonar vel.

Ólafur Páll Snorrason fór í Fjölni.vísir/vilhelm
MARKAÐURINN

Komnir:

Amath André Diedhiou frá Moldavíu

Bjarni Þór Viðarsson frá Silkeborg

Guðmann Þórisson frá Mjallby

Kristján Flóki Finnbogason frá FC Kaupmannahöfn

Jeremy Serwy frá Belgíu

Þórarinn Ingi Valdimarsson frá ÍBV  

Farnir:

Emil Pálsson í Fjölni á láni

Guðjón Árni Antoníusson í Keflavík

Hólmar Örn Rúnarsson í Keflavík

Ingimundur Níels Óskarsson í Fylki

Ólafur Páll Snorrason í Fjölni

Sean Reynolds til Bandaríkjanna

Nokkur endurnýjun hefur verið á leikmannahópi FH. Heimir losaði sig við leikmenn sem hafa ekki verið fastamenn hjá honum fyrir utan fyrirliðann Ólaf Pál Snorrason sem fór heim í Fjölni.

Finnur Orri Margeirsson kom og fór, en það er leikmaður sem hefði styrkt FH-liðið verulega og gefið því nákvæmlega það sem það þurfti á miðjuna. Í staðinn er kominn heim Bjarni Þór Viðarsson sem er kannski aðeins of líkur bróður sínum Davíð inn á vellinum.

Guðmann Þórisson var besti miðvörður deildarinnar sumarið 2012 þegar hann spilaði hér síðast og er auðvitað mikill fengur, en hann og Kassim ættu að mynda gríðarlega sterkt miðavarðapar þegar „Draumurinn“ kemur aftur úr leikbanni.

Þórarinn Ingi Valdimarsson sýndi ekki sínar bestu hliðar með Eyjamönnum í fyrra en það vita allir hvað hann getur. Þórarinn byrjar leiktíðina á bekknum hjá FH en það segir sitt um breiddina hjá liðinu að vera með svona leikmann klárar á tréverkinu.

Jérémy Serwy hefur heillað marga á undirbúningstímabilinu, en þar er kominn leikmaður sem tekur við föstu leikatriðunum af FH. Þau hafa skilað liðinu haug af mörkum á undanförnum árum.

HVAÐ SEGIR SÉRFRÆÐINGURINN?

Pepsi-mörkin fóru af stað á fimmtudaginn með árlegum upphitunarþætti. Þar var FH spáð titlinum líkt og á Vísi, en Hjörvar Hafliðason og Hjörtur Hjartarson, sérfræðingar Pepsi-markanna, fóru yfir FH-liðið. Umræðuna má sjá í spilaranum hér að neðan.

Heimir Guðjónsson vonast eftir að vinna fjórða Íslandsmeistaratitilinn sem þjálfari FH.vísir/daníel
STYRKLEIKAR LIÐSINS:

Ótrúleg gæði og breidd í leikmannahópnum, en „B“-lið FH gæti eflaust verið í baráttu um Evrópusæti. Liðið er með frábæran þjálfara sem hefur lag á að halda stjörnunum þokkalega sáttum en þó hungruðum.  Sigurhefðin hjá félaginu á undanförnum árum hefur bara stigmagnast og umgjörðin í kringum félagið er sú besta á landinu.

VEIKLEIKAR LIÐSINS:

Heimir ætlar að spila 4-4-2 og hefur unnið í því á undirbúningstímabilinu, en spurning er hvernig það gengur upp í fyrstu umferðunum. Miklar breytingar hafa verið á liðinu og eins og mörg önnur lið vonast FH til að erlendir leikmenn á borð við Serwy standi undir væntingum. Pressan á liðinu er líka svakaleg.

Kassim Doumbia byrjar tímabilið í banni.vísir/stefán
BINNI BJARTSÝNI SEGIR:

Það þarf ekkert að spila þetta mót. Við erum með tvo menn í hverja stöðu, langbesta þjálfarann á landinu, bestu aðstöðuna, bestu umgjörðina, framsýnasta formanninn og flottasta völlinn. Þó FH sé ekki ríkjandi meistari er það besta liðið og titilinn kemur heim í haust. Það er ekkert flókið. Þetta verður auðvelt.

SIGGI SVARTSÝNI SEGIR:

Ekki einu sinni ég get mótmælt því að við eigum að verða meistarar. Það er kannski pressan á liðinu og nýja leikkerfið sem gæti hleypt KR og Stjörnunni inn í þetta, en meira að segja þó 5-6 leikmenn geri upp á bak eru bara 5-6 aðrir á bekknum sem geta tekið þeirra stöður. Ég er ekki svo svartsýnn að spá okkur ekki titlinum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×