Íslenski boltinn

Spá Fréttablaðsins og Vísis: Stjarnan hafnar í 3. sæti

Daníel Laxdal, miðvörður Stjörnunnar, fagnar íslandsmeistaratitlinum í fyrra.
Daníel Laxdal, miðvörður Stjörnunnar, fagnar íslandsmeistaratitlinum í fyrra. Vísir/Andri Marinó
Fréttablaðið og Vísir telur niður í Pepsi-deild karla í knattspyrnu með árlegri spá sinni. Íslandsmótið hefst 3. maí og þar á Stjarnan titil að verja eftir að hafa orðið meistari í fyrsta skipti í sögu félagsins.

Fréttablaðið spáir Stjörnunni þriðja sætinu og þar með að það verji ekki Íslandsmeistaratitilinn sem liðið fagnaði í fyrra í fyrsta skipti í sögu félagsins. Liðið verður í toppbaráttunni og nær Evrópusæti annað árið í röð, en liðið fór alla leið í umspil Evrópudeildarinnar í fyrstu tilrauní Evrópukeppni.

Rúnar Páll Sigmundsson þjálfar Stjörnuna annað árið í röð, en hann gerði ótrúlega hluti á sínu fyrsta tímabili. Hann vann titilinn í fyrstu tilraun og kom liðinu í fjórðu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar, lengra en nokkur maður. Hann tapaði aðeins einum bikarleik og tveimur leikjum gegn stórliði Inter á síðustu leiktíð.

LÍKLEGT BYRJUNARLIÐ:
graf/garðar
EINKUNNASPJALDIÐ

Vörnin: 4 stjörnur (af 5)

Sóknin: 5 stjörnur

Þjálfarinn: 4 stjörnur

Breiddin: 4 stjörnur

Liðsstyrkurinn: 4 stjörnur

Hefðin: 3 stjörnur

Halldór Orri Björnsson, Ólafur Karl Finsen og Gunnar Nielsen.vísir/vilhelm
ÞRÍR SEM STJARNAN TREYSTIR Á

Halldór Orri Björnsson: Þessi frábæri sóknarmaður var magnaður fyrir Stjörnuna fimm ár í röð áður en hann fékk tækifæri í atvinnumennsku í fyrra, en hann er nú kominn aftur heim. Halldór Orri skoraði 47 mörk af kantinum í 106 leikjum í efstu deild áður en hann fór út. Mögnuð tölfræði. Frábær leikmaður sem skapar mikið fyrir samherja sína og skorar augljóslega mikið sjálfur.

Ólafur Karl Finsen: Maðurinn sem kláraði Íslandsmótið fyrir Stjörnuna í fyrra. Fullnýtti þá hæfileika sem allir vissu að væru til staðar. Leikmaður sem má ekki dala og vera saddur ætli Stjarnan að verja Íslandsmeistaratitilinn. Fljótur, sterkur og marksækinn leikmaður sem getur spilað fremstur á miðju, á kantinum og þess vegna í fremstu víglínu.

Gunnar Nielsen: Stjarnan fór langt á frábærum markverði í fyrra, en Ingvar Jónsson var kjörinn besti leikmaður Íslandsmótsins. Hann vann ófáa leikina fyrir Stjörnuna og hefur Gunnar því stórt skarð að fylla. Færeyski landsliðsmarkvörðurinn er stór og sterkur, öflugur í loftinu og talar mikið sem er eitthvað sem Stjörnuvörnin þarf á að halda.

Þórhallur Kári Knútsson.vísir/vilhelm
Nýstirnið: Þórhallur Kári Knútsson

Uppalinn strákur fæddur 1995 sem hefur verið lykilmaður í 2. flokk Stjörnunnar sem vann Íslandsmótið undanfarin tvö ár.

Hefur fengið tækifæri á undirbúningstímabilinu vegna meiðsla, en hann byrjaði sex af sjö leikjum liðsins í Lengjubikarnum og kom svo inn á í Meistaraleiknum og skoraði sigurmarkið á móti KR.

Ingvar Jónsson er farinn til Noregs en Gunnar Nielsen kom í staðinn.vísir/daníel
MARKAÐURINN

Komnir:

Brynjar Gauti Guðjónsson frá ÍBV

Gunnar Nielsen frá Motherwell

Halldór Orri Björnsson frá Falkenbergs

Jeppe Hansen frá Fredericia

Farnir:

Baldvin Sturluson í Val

Hilmar Þór Hilmarsson í Val

Ingvar Jónsson í Start

Martin Rauschenberg til Gefle

Niclas Vemmelund

Rolf Toft í Víking

Íslandsmeistararnir misstu sig ekkert á leikmannamarkaðnum með Evrópumilljónirnar sínar heldur fylltu að mestu leyti bara í þau skörð sem vantaði og það með gæðaleikmönnum.

Brynjar Gauti Guðjónsson kemur í stað Danans Martins Rauschenberg í vörnina, Jeppe Hansen er kominn aftur í framlínuna fyrir samlanda sinn Rolft Toft sem fór í Víking og færeyski landsliðsmarkvörðurinn leysir Ingvar Jónsson af í markinu.

Stjarnan hefur ekki leyst hægri bakvarðarstöðuna með innkaupum eftir brotthvarf Niclas Vemmelunds sem fékk alltof lítið hól í fyrra, en þar verður Heiðar Ægisson væntanlega notaður þar til Jóhann Laxdal nær sér af meiðslum.

Garðbæingar fengu svo Halldór Orra Björnsson heim sem styrkir liðið svakalega, en eins og greint var frá hér að ofan var hann nánast eins manns sóknarher fyrstu fimm árin sín í Pepsi-deildinni.

Stjörnumenn hefðu kannski þurft að fá sér reyndan og sterkan miðjumann þar sem Michael Præst verður áfram frá keppni vegna meiðsla framan af móti og þá hefur Atli Jóhannsson spilað í gegnum meiðsli í langan tíma. En Stjarnan treystir ungu strákunum sínum.

HVAÐ SEGIR SÉRFRÆÐINGURINN?

Hjörvar Hafliðason hefur í sex ár verið einn helsti sparkspekingur landsins þegar kemur að Pepsi-deildinni. Hann spilaði með HK, Val og Breiðabliki í efstu tveimur deildum Íslandsmótsins á tíu ára ferli. Hjörvar verður einn af þremur sérfræðingum Pepsi-markanna í sumar, en þetta er fimmta árið hans í þættinum.

 

Stjarnan er með langbestu stuðningsmannasveitina í dag; Silfurskeiðina.vísir/andri marinó
STYRKLEIKAR LIÐSINS:

Byrjunarliðið þegar allir eru heilir er rosalega sterkt og framlínan ógnvænleg með þá Veigar Pál, Halldór Orra, Ólaf Karl og Jeppe auk Arnars Más. Liðið er með ógnarsterkan heimavöll, frábæra stuðningsmenn og þjálfara sem tapaði ekki leik í deildinni á síðustu leiktíð.

VEIKLEIKAR LIÐSINS:

Varnarleikurinn er smá spurningamerki framan af hið minnsta vegna meiðsla Jóhanns Laxdals og þá er spurning hvernig Brynjar Gauti kemur inn í liðið. Aftur munu ungu strákarnir þurfa standa sig þar sem slatti af þeim mun væntanlega fá tækifæri, en það er ekki alltaf hægt að treysta á óreynda menn.

Veigar Páll Gunnarsson varð Íslandsmeistari með uppeldisfélaginu í fyrra.vísir/andri marinó
BINNI BJARTSÝNI SEGIR:

Við fylltum í öll skörðin og fengum einn besta og stöðugasta leikmann deildarinnar heim. Við erum með bestu stuðningsmennina, besta þjálfarann, leikmenn sem geta unnið leiki upp á sitt einsdæmi og mikið af uppöldum strákum sem spila með hjartanu. Titilinn verður áfram í Garðabænum.

SIGGI SVARTSÝNI SEGIR:

Það hefur ekkert lið nema FH varið titilinn á undanförnum 17 árum. Við náðum að yfirstíga þá hindrun að hafa aldrei unnið neitt en við höfum heldur aldrei þurft að verja titilinn. Meiðslin verða okkur erfið í byrjun þegar við heimsækjum lið sem spáð er neðstu sætunum. Þau mæta brjáluð til leiks og ef við erum ekki á tánum gætum við misst af titilbaráttunni í hraðmótinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×