Árangur liðsins hefur verið magnaður undanfarin misseri. Strákarnir okkar komust í umspil fyrir HM 2014 og eru nú í góðri stöðu í undankeppni EM 2016. Þrír heimasigrar koma íslenska liðinu til Frakklands.
„Þetta er tvennt ólíkt. Þetta var svolítið staðnað í að vera einhver vinaklúbbur. Þetta snerist meira um að mæta og hittast heldur en að ná árangri. Það var búið að afskrifa árangur því við erum svo lítil þjóð,“ segir Kári í viðtali í sjónvarpsþættinum 433.is á Hringbraut.
„Auðvitað vildu þeir sem voru að vinna að þessu ná árangri, en stemningin hjá leikmönnum og allt í kringum þetta var ekki jafngóð og í dag. Þetta hefur breyst mikið og nú eru ungir og metnaðarfullir strákar í liðinu sem vilja ná árangri. Það er bara gaman að vera hluti af þessu.“

„Áður fyrr snerist þetta allt um að fara út á lífið með landsliðsfélögunum,“ sögðu þeir báðir og Victor bætti við: „Þetta snerist um að fara heim, hitta fjölskylduna og fara á pöbbinn með strákunum.“
Guðlaugur Victor var þó fljótur að bregðast við þegar viðtalið var birt og sagði orð sín slitin úr samhengi.
Pétur Pétursson, sem var aðstoðarþjálfari Ólafs Jóhannessonar hjá landsliðinu, tók ekki vel í orð Arnórs og Victors og velti því fyrir sér hvort þeir tveir hefðu verið á pöbbnum þegar leikskipulag landsliðsins var rætt, en það var einnig gagnrýnt.
Aðspurður hvort landsliðsverkefnin hafi verið pöbbahittingar fyrir leikmennina segir Kári svo ekki vera.
„Nei, alls ekki. Ég myndi ekki segja það. Menn voru kannski of góðir félagar. Það er ekkert hægt að kenna leikmönnum eða starfsliði um. Það þurfti bara eitthvað að breytast. Ég held að engan hafi órað fyrir þeim árangri sem náðist strax í framhaldinu. Við höfum komið sjálfum okkur á óvart,“ segir Kári, en hvað er það sem hefur breyst með komu Lars Lagerbäck?
„Það eru taktískar breytingar. Það eru miklar endurtekningar um hvernig við spilum og hvernig við verjumst. Það vantaði alltaf. Liðin sem við spilum við oftast eru betri en við mann fyrir mann, en Lars og Heimir eru búnir að koma inn þeirri trú hjá mannskapnum að hinir eru ekki betri fótboltamenn ef við erum með bestu liðsheildina og skipulagðastir. Það er þannig sem við vinnum leiki. Við verjumst sem ein heild og það skilar liðinu áfram.“

„Þetta er allt annað. Nú býst bara þjóðin við að við vinnum alla leiki. Við sjálfir ætlum okkur alltaf að vinna en erum ekki svo kokhraustir að halda við vinnum alltaf, en við ætlum okkur að vinna. Það er svo miklu skemmtilegra þegar þú hugsar að þú ætlir að taka þetta. Þannig eru allir í kringum þetta núna. Það eru allir um borð,“ segir Kári Árnason.
Allan þáttinn má sjá hér að neðan en landsliðsumræðan er undir lok þáttarins.