Sport

Lét útbúa munnstykki fyrir 3,4 milljónir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Munnstykkin umtöluðu sem eru skreytt með ýmsum munaði.
Munnstykkin umtöluðu sem eru skreytt með ýmsum munaði.
Hnefaleikakappinn Floyd Mayweather hefur aldrei verið feiminn við að láta vita hversu mikið hann hefur þénað á ferlinum.

Það nýjasta er að hann lét útbúa munnstykki fyrir bardaga sinn gegn Manny Pacquaio þann 2. maí. Þau eru skreytt með demöntum, gullflögum og peningaseðlum og kostuðu 25 þúsund dollara, jafnvirði 3,4 milljónum króna.

Þau eru sérsmíðuð af lækni í New York sem flýgur sérstaklega til Las Vegas til að taka mál af tanngarði Mayweather fyrir bardaga.

„Ég á nítján ára feril að baki og hef tekist að varðveita brosið mitt,“ sagði Mayweather aðspurður um munnstykkin sín.

Mayweather hefur efni á munaði sem þessum enda tekjuhæsti íþróttamaður heims undanfarin þrjú ár samkvæmt úttekt Forbes-tímaritsins. Líklegt er að bardaginn gegn Pacquaio muni sjá til þess að hann verði einnig tekjuhæstur allra í ár.

Box

Tengdar fréttir

Pacquiao syngur eigið inngöngulag

Það er greinilega ekki til það verk sem er Manny Pacquiao ofviða. Hann er einn besti hnefaleikamaður heims, er atvinnumaður í körfubolta, stjórnmálamaður og nú söngvari.

Mayweather og Pacquiao verða lyfjaprófaðir

Það bíða margir spenntir eftir boxbardaga Floyd Mayweather og Manny Pacquiao sem fer fram í maí í Las Vegas en hann hefur þegar fengið gælunafnið Bardagi aldarinnar. Nú er ljóst að boxararnir mæta "hreinir" til leiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×