Hinn serbneski Shearer? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. ágúst 2015 23:00 Mitrovic vill feta í fótspor Shearer. vísir/getty
Newcastle United hefur ekki keypt marga leikmenn í sumar en þeir sem eru komnir gætu hæglega slegið í gegn. Einn þeirra er serbneski framherjinn Aleksandar Mitrovic sem hefur farið mikinn með Anderlecht í Belgíu undanfarin tvö tímabil. Mitrovic er stór og sterkur, harður af sér, öflugur í loftinu, góður í teignum, mjög markheppinn og er aðeins tvítugur. Komist hann í betra form og láti ekki skapið hlaupa með sig í gönur getur hann orðið frábær fyrir Newcastle sem skoraði aðeins 40 mörk í 38 deildarleikjum í fyrra. Mitrovic er uppalinn hjá Partizan Belgrad og braut sér leið inn í aðallið félagsins tímabilið 2012-13. Hann skoraði fimmtán mörk í 36 leikjum á sínu fyrsta tímabili með Partizan og í upphafi þess næsta var Mitrovic seldur til Anderlecht þar sem hann var gríðarlega öflugur. Serbinn skoraði alls 44 mörk í 90 leikjum fyrir Anderlecht og var markahæsti leikmaður belgísku deildarinnar í fyrra með 20 mörk. Þá hefur Mitrovic leikið 13 landsleiki fyrir Serbíu og var lykilmaður í U-19 ára landsliðinu sem varð Evrópumeistari 2013. Mitrovic dreymir um að feta í fótspor Alans Shearer hjá Newcastle og þótt hann eigi enn óralangt í land með að komast á sama stall og sú goðsögn þá hefur Serbinn allavega hæfileikana sem til þarf til þess að blómstra í ensku úrvalsdeildinni.- iþs
Enski boltinn Mest lesið Ólympíuhöll brennur í Ríó Sport KA - Valur 30-33 | Svöruðu fyrir sig en tókst ekki að landa sigri Handbolti KR - Keflavík 94-80 | Thomas tók yfir í fjórða leikhluta Körfubolti Hitti óvart og fékk síðan flautukörfu í andlitið Körfubolti „Ég vildi óska þess að ég hefði ekki verið svona mikið veik“ Handbolti Hafþór ætlar að slá tvö heimsmet í sömu vikunni Sport Notar kylfu úr þrívíddarprentara á Masters-mótinu Golf Gylfi missir af upphafsleiknum Íslenski boltinn Tók málin í sínar eigin hendur: „Svía fíflið þitt“ Íslenski boltinn Strákarnir okkar mæta Messi fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Botnlanginn fjarlægður úr Embiid Vill fá frí milli leikja eins og frönsku liðin Formleg kvörtun á borði UEFA: Átti Barcelona að fá víti gegn Atlético? Villa vann með tveimur en Forest fer heim með jafna stöðu „Heyrum varla í hvor öðrum“ Grindavík sópaði Val í sumarfrí Titilvörnin hefst mjög vel hjá McIlroy en DeChambeau í basli Svartfellingar gerðu stelpunum okkar góðan greiða Blær situr sem límdur við botninn Arnór með bakið upp við vegg en Einar fagnar KR - Keflavík 94-80 | Thomas tók yfir í fjórða leikhluta Orri fór illa með færin en fer áfram þrátt fyrir tap Albert fór í fýluferð til Lundúna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar Álvarez reyndi að herma eftir Messi KA - Valur 30-33 | Svöruðu fyrir sig en tókst ekki að landa sigri Hægri hönd Verstappens skiptir um lið Þakklát fyrir það sem hún hefur eftir erfið veikindi Gylfi missir af upphafsleiknum Gefa íþróttafólki Ólympíubónus sem keppti aldrei á leikunum Strákarnir okkar mæta Messi fyrir HM Besta sætið: Van Dijk er svo leiðinlegur fyrirliði Hitti óvart og fékk síðan flautukörfu í andlitið Luis Díaz: Ég tók rétta ákvörðun með því að fara frá Liverpool Heimir Guðjóns mætir FH í bikarnum og KR fer í Garðabæinn „Hákarlinn“ enn kæstur þrjátíu árum eftir frægt klúður Tók málin í sínar eigin hendur: „Svía fíflið þitt“ „Þetta gefur okkur ekkert forskot“ „Vona að þeir haldi í sín gildi og verði svolítið hugrakkir“ Víkingar bjóða börnum undir sextán ára frítt á Blikaleikinn Sjá meira