Fetar Rolf Toft í fótspor Gumma Steins? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. desember 2014 09:00 Rolf Toft fagnar sigurmarki sínu á móti Víkingi í fyrra. Vísir/Valli
Víkingar náðu í gær samningum við danska framherjann Rolf Toft en hann skrifaði undir tveggja ára samning við Fossvogsliðið. Víkingar höfðu betur en Stjörnumenn sem vildu einnig semja aftur við þennan 22 ára framherja. Rolf Toft átti mikinn þátt í fyrsta Íslandsmeistaratitli Stjörnunnar í sumar en hann skoraði 6 mörk í 11 leikjum í Pepsi-deildinni 2014, þar af fjögur mörk í síðustu fjórum leikjum liðsins. Toft skoraði þrennu í næstsíðustu umferðinni þegar Stjarnan tryggði sér úrslitaleik um titilinn á móti FH sem liðið síðan vann.Víkingur sýndi honum meiri áhuga „Ég vissi frá byrjun að þetta væri rétt ákvörðun og ég er ánægður með að þetta hafi gengið upp. Stjarnan var inni í myndinni, en Víkingur hafði meiri áhuga og sýndi þann áhuga í verki. Þess vegna valdi ég Víking. Ég var að leita mér að liði í stærri deild en það gekk ekki upp. Það verður gaman að koma aftur til Íslands þar sem ég á góðar minningar. Ég kem ekki sorgmæddur aftur til Íslands,“ sagði Rolf Toft í samtali við Tómas Þór Þórðarson á Vísi í gær. Víkingur bölvuðu honum reyndar einu sinni í sumar. Það var nefnilega bara skorað eitt mark í tveimur leikjum Víkings og Stjörnunnar. Fyrri leikurinn endaði með markalausu jafntefli á gervigrasinu í Garðabænum en í þeim síðari skoraði einmitt umræddur Rolf Toft sigurmarkið strax á 9. mínútu. „Það var gaman í Stjörnunni og ég lít til baka glaður á tímann sem ég dvaldi þar. En nú tekst ég á við nýtt verkefni,“ sagði framherjinn í fyrrnefndu viðtali á Vísi. Það eru liðin 24 ár síðan Víkingar fengu síðast til sín framherja úr Íslandsmeistaraliði en það gerðist veturinn 1990 til 1991 þegar Guðmundur Steinsson, þá þrítugur, ákvað að skipta úr Fram. Guðmundur hafði unnið bronsskóinn árið á undan þar sem hann skoraði tíu mörk og varð markahæstur hjá Íslandsmeistaraliði Fram. Víkingsliðið endaði í sjöunda sæti árið á undan en liðstyrkurinn í Guðmundi (og fleirum) hjálpaði til að gera sumarið 1991 að miklu ævintýri fyrir Víkinga.Viðburðaríkt tímabil hjá Guðmundi 1991 Þetta var svo sannarlega viðburðaríkt tímabil fyrir Guðmund Steinsson sem varð bæði markakóngur deildarinnar (ásamt Herði Magnússyni hjá FH) og var síðan líka kosin besti leikmaður ársins. Í viðbót við það og að vinna Íslandsmeistaratitilinn, fyrsta titil Víkinga í níu ár, þá meiddist hann tvisvar þetta sumar. Guðmundur kinnbeinsbrotnaði fyrst á æfingu í júlíbyrjun (missti af þremur leikjum) og lék með grímu í nokkrum leikjum eftir það. Guðmundur var síðan borinn af velli í „úrslitaleiknum“ á móti Fram eftir að hafa fengið takka Birkis Kristinssonar í hnéð um leið og hann kom Víkingsliðinu yfir í 1-0. Víkingar unnu leikinn 2-0 og unnu að lokum titilinn á markatölu. Þau gerast því varla eftirminnilegri tímabilin en fyrsta leiktíð Guðmundar Steinssonar í Víkinni. Íslandsmeistaralið hafa lifað það af að missa framherja sinn til annars íslensks liðs. Skagamenn misstu Mihajlo Bibercic, markakóng Íslandsmótsins 1994, yfir í KR en tókst engu að síður að vinna Íslandsmeistaratitilinn með sannfærandi hætti árið eftir. KA-menn misstu Anthony Karl Gregory eftir að þeir unnu titil 1989 og voru í fallbaráttu sumarið eftir og FH-ingar vörðu ekki titilinn sumarið 2010 eftir að hafa unnið tvö ár í röð þar á undan með Tryggva Guðmundsson innanborðs.Guðmundur Steinsson Íslandsmeistari Víkingur 1991 fótbolti knattspyrna sumar 1991 Bestur Markahæstur Leikmaður ársinsGuðmundur Steinsson er líka langt frá því að vera eini leikmaðurinn sem hefur orðið Íslandsmeistari tvö ár í röð með tveimur félögum. Þorsteinn Þorsteinsson fylgdi honum til dæmis yfir í Víking fyrir þetta tímabil 1991 en Þorsteinn var ekki fastamaður í Framliðinu 1990 eins og Guðmundur. Einn af þeim fyrstu sem náðu þessu var Kristinn Björnsson. Hann var reyndar ekki fastamaður með Val þegar liðið vann titilinn 1976 en tók engu að síður þátt í 13 af 16 leikjum liðsins. Kristinn fór yfir í ÍA fyrir 1977-tímabilið og fór þá á kostum ásamt þá 18 ára gömlum Pétri Péturssyni þegar Skagamenn tryggðu sér titilinn. Saman skoruðu þeir 22 mörk, Pétur skoraði 16 mörk og Kristinn var með 6 mörk í 18 leikjum. Aðrir sem náðu því eins og Guðmundur að spila stórt hlutverk með mismunandi félögum á tveimur Íslandsmeistaratímabilum í röð eru Ormarr Örlygsson (Fram 1988 og KA 1989), Zoran Miljkovic (ÍA 1996 og ÍBV 1997) og Baldur Bett (FH 2006 og Valur 2007). Hvort Rolf Toft bætist í hópinn næsta sumar verður að koma í ljós en líkt og Guðmundur var ekki eini liðsstyrkurinn sem Víkingar fengu fyrir sumarið 1991 þarf Fossvogsliðið að bæta við fleiri mönnum ætli liðið sér að berjast um efstu sætin í Pepsi-deildinni 2015.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Fleiri fréttir Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Sjá meira