Vilja fá trampólín og hoppukastala fyrir hjólastóla Hrund Þórsdóttir skrifar 9. maí 2014 20:00
Starfsmenn Klettaskóla fengu leiktækjafyrirtækið Krumma ehf. til liðs við sig, til að smíða hjólastólarólu sem búið er að setja upp við skólann og hún er því íslensk hönnun og framleiðsla. Ferlinefnd Reykjavíkurborgar fjármagnaði verkefnið og er nú um hálfs árs vinnu lokið. „Fólk í hjólastólum hefur ekki getað rólað og þetta gefur þessu fólki tækifæri, bæði börnum og fullorðnum. Rólan tekur nánast allar gerðir af hjólastólum, sem er mikilvægt,“ segir Hrafn Ingimundarson, framkvæmdastjóri Krumma og hönnuður rólunnar. Rólan er úr áli sem gerir hana létta og við 30 gráðu útsveiflu á henni hallast búrið ekki nema um um það bil 15 gráður. Vegleg öryggisgirðing er til staðar í kringum róluna og strekkibönd og öryggisbelti tryggja öryggi þess sem rólar. Krumma tekur þátt í stórri vörusýningu í Þýskalandi í haust og þar verður rólan kynnt. Hrafn getur vel hugsað sér að hanna fleiri leiktæki fyrir hjólastóla. „Maður sér ánægjuna skína í gegn hjá krökkunum og þetta gefur bæði þeim og okkur mjög mikið.“ Krakkarnir kunna vel að meta tilbreytinguna og gleðin sem skín af þeim er smitandi. Í meðfylgjandi myndskeiði er rætt við tvö þeirra og óska þau eftir því að búin verði til trampólín og hoppukastalar fyrir hjólastóla. Þá má sjá sannkallaða gleðigjafa og býsna efnilega fréttamenn framtíðarinnar spreyta sig fyrir Stöð 2.
Tengdar fréttir Róla fyrir hjólastóla við Klettaskóla "Það er frábært að fá leiktæki við hæfi og sem kemur til móts við þarfir barna í hjólastólum, sem annars geta ekki nýtt sér hefðbundnar rólur,“ segir Lára Magnea Jónsdóttir, formaður foreldrafélags Klettaskóla. 7. maí 2014 17:00 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fleiri fréttir Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Sjá meira
Róla fyrir hjólastóla við Klettaskóla "Það er frábært að fá leiktæki við hæfi og sem kemur til móts við þarfir barna í hjólastólum, sem annars geta ekki nýtt sér hefðbundnar rólur,“ segir Lára Magnea Jónsdóttir, formaður foreldrafélags Klettaskóla. 7. maí 2014 17:00