Hólmbert verður lánaður frá Celtic Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. júlí 2014 11:00 Hólmbert Aron sló í gegn með Fram í Pepsi-deildinni í fyrra. vísir/daníel
Hólmbert Aron Friðjónsson, framherji Celtic, spilar ekki með liðinu í skosku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð heldur verður hann lánaður frá félaginu. „Þeir eru búnir að gefa vilyrði fyrir því að hann fari á láni og eru að vinna með ákveðna klúbba,“ segir Gylfi Sigurðsson, umboðsmaður, í samtali við Vísi.Ronny Deila, knattspyrnustjóri Celtic, valdi Hólmbert ekki í Meistaradeildarhópinn á móti KR og sagði á blaðamannafundi fyrir leikinn: „Það hefði verið of snemmt að taka hann inn núna. Við þurfum að vinna með hann áfram og þróa hans leik. Þetta er duglegur strákur sem þarf að halda áfram að vera duglegur og bíða eftir sínu tækifæri.“ Gylfi segir Celtic-menn þó ekki vilja sleppa Hólmberti. Hann verður lánaður sem fyrr segir til liðs þar sem hægt verður að fylgjast náið með honum. „Það eru tveir möguleikar í gangi; annar í Belgíu og hinn á Norðurlöndum. Það kemur svo í ljós á næstu dögum hvað gerist,“ segir Gylfi Sigurðsson. Hólmbert Aron var keyptur til Celtic í desember á síðasta ári eftir að hafa skorað 10 mörk í 21 leik fyrir Fram síðasta sumar. Hann var ein af stjörnum mótsins og hjálpaði Fram að vinna bikarmeistaratitilinn, fyrsta stóra bikar liðsins í 23 ár. Hann kom ekkert við sögu hjá Celtic á síðustu leiktíð undir stjórn Neils Lennons, en Skotinn sagði upp störfum eftir tímabilið og við liðinu tók Norðmaðurinn Ronny Deila.
Fótbolti Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Sjá meira