Erlent

Farþegaþota með 295 farþegum innanborðs hrapar í Úkraínu

Atli Ísleifsson skrifar
Ástandið á slysstað er vægast sagt hræðilegt, lík og flugvélabrak dreifast um sveitirnar nálægt bænum Grabovo.
Ástandið á slysstað er vægast sagt hræðilegt, lík og flugvélabrak dreifast um sveitirnar nálægt bænum Grabovo.
Allir farþegar Boeing-vélar malasíska flugfélagsins Malaysian Airlines, MH17, eru látnir eftir að farþegavélin var skotin niður í Úkraínu, sextíu kílómetrum frá borginni Donetsk og fjörutíu kílómetrum frá rússnesku landamærunum.

Úkraínska innanríkisráðuneytið hefur nú staðfest þessar fregnir en innanríkisráðherrann Anton Gerashchenko, sagði á Facebook-síðu sinni að „280 farþegar og 15 áhafnarmeðlimir“ væru látnir.

Uppfært: Tala látinna er 298 en ekki 295 eins og talið var í fyrstu. Þrjú ungabörn voru í vélinni sem ekki hafði verið gert ráð fyrir þar sem þau voru ekki með eigin sæti.

Vélin, sem er af gerðinni Boeing 777, var á leið frá Amsterdam í Hollandi til malasísku höfuðborgarinnar Kuala Lumpur. Hún tók á loft frá Schiphol-flugvelli í Amsterdam klukkan 10 að íslenskum tíma í morgun og átti að lenda í Kuala Lumpur klukkan 6.10 að staðartíma.

Flugvélar annarra flugfélaga sneiða nú hjá Austur-Úkraínu en farþegaflug yfir átakasvæðunum eru tíð.

Starfsmaður borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins segir í samtali við Vísi að ráðuneytið vinni að því að komast að hvort einhverjir Íslendingar hafi verið um borð í vélinni.

Erlendir fjölmiðlar, þar á meðal rússneska fréttaveitan Interfax, segja að vélin hafi verið skotin niður á meðan hún flaug í 10 þúsund metra hæð í austurhluta Úkraínu skammt frá bænum Torez nærri Shakhtersk í Donetsk héraði. Vélin var um 50 kílómetra frá rússneskri lofthelgi.

Fréttastofa Reuters segir að starfsmaður þeirra sé kominn að flaki vélarinnar sem stendur í ljósum logum og lík farþega er að finna á jörðinni, allt að fimmtán kílómetrum frá flakinu sjálfu.

Miklir bardagar hafa geisað á landamærum Rússlands og Úkraínu milli úkraínskra hersveita og aðskilnaðarhreyfingum að undanförnu.

Heimildarmaður úr úkraínska innanríkisráðuneytinu segir að vélin hafi verið skotin niður með flugskeytum frá jörðu. Talið er að flugskeytið hafi verið af gerðinni Buk sem lengi voru notuð af sovéska hernum.

Hér má sjá flugleið vélarinnar.
Innanríkisráðuneyti Úkraínu heldur því einnig fram að aðskilnaðarsinnar beri ábyrgð á ódæðinu en það hefur ekki fengist staðfest. Aðskilnaðarsinnar, stuðningsmenn Rússa sem lýstu yfir sjálfstæðu lýðveldi Donetsk í apríl síðastliðinn, segjast ekki bera ábyrgð á verknaðinum en montuðu sig af því fyrr í dag að hafa skotið niður „úkraínska fraktvél“.

Talsmaður aðskilnaðarsinna segir þá ekki búa yfir þeim vopnum sem krefst til að skjóta niður vélar í þessari hæð. Petro Poroshenko Úkraínuforseti segist viss um að þeir sem beri ábyrgð á harmleiknum muni þurfa að svara til saka. Rússneska fréttaveitan Interfax segir að leiðtogar aðskilnaðarsinna ætli að afhenda rússneskum yfirvöldum svarta kassann úr vélinni.

Um borð voru 154 Hollendingar. Einnig 27 Ástralir, 23 Malasar, 11 Indónesar, 6 Bretar, 4 Þjóðverjar, 4 Belgar, 3 Filippseyingar, 1 Kanadamaður. Enn á eftir að staðfesta þjóðerni rúmlega 60 af þeim 295 farþegum sem voru um borð. 

Alexander Borodai, leiðtogi aðskilnaðarsinna, sakar úkraínska stjórnarherinn um að hafa skotið vélinni niður. Stjórnvöld í höfuðborginni Kíev hafna þessu ásökunum.

Forsætisráðherra Úkraínu, Arsení Jatsenjúk, hefur farið fram á opinbera rannsókn á málinu. Það hefur forsætisráðherra Malasíu einnig gert:

Malasya Airlines sagði frá því fljótlega eftir að sambandið tapaðist við vélina á Twitter-síðu sinni: Hishamuddin Hussein, varnarmálaráðherra Malasíu, sagði á Twitter-síðu sinni að ekki væri staðfest að vélin hefði verið skotin niður. Malasíski herinn sé að athuga málið nánar. Fólk skilur eftir blóm og kerti fyrir utan Hollenska sendiráðið í Kænugarði. Í ljós hefur komið að 154 þeirra sem fórust voru Hollendingar. Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, segir harmleikinn vera 'svartan dag' í sögu Hollands. 'Allt landið syrgir. Þessi fallegi sumardagur endaði á myrkasta mögulega hátt.'
Bandaríkjamenn eru handvissir um að vélin hafi verið skotin niður. 'Þetta var ekki slys. Hún var skotin niður,' segir Joe Biden varaforseti. Barack Obama forseti hringdi í Petro Poroshenko Úkraínuforseta og tjáði honum að þeir ætli að hjálpa þeim að komast til botns í málinu. Ekki megi hrófla of mikið við brakinu þar til alþjóðlegt lið rannsakenda sé komið á staðinn.
Vladimir Pútín Rússlandsforseti segir Úkraínumenn bera ábyrgð á þessum harmleik. Flugvélin fór niður yfir þeirra landi og það hefði ekki gerst ef stjórnvöld í Kænugarði hefðu ekki aukið hernað á móti aðskilnaðarsinnum í austurhluta landsins.
Hér fyrir neðan eru skilaboð frá Flightradar 24, sem fylgist með allri flugvélaumferð. Á myndinni sést hvar vélin var stödd þegar hún hrapaði. Hér fyrir neðan má sjá myndband af YouTube, sem sýnir reykinn frá slysstað.
Hér fyrir neðan má sjá myndir sem fréttamenn og aðrir á slysstað hafa sent frá sér. Við vörum viðkvæma við þeim.

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×