Leitaði að Skagaleiknum á leikjaplaninu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. júlí 2014 10:00 Páll Kristjánsson er í hópi stofnenda KV og á það á ferilskránni að hafa unnið ÍA á Akranesi. Vísir/Daníel „
Þetta er sá leikur sem maður leitaði fyrst eftir þegar leikjadagskráin var gefin út,“ sagði Páll Kristjánsson, formaður og annar þjálfara KV sem vann frækinn 1-0 sigur á Akranesi í 1. deild karla í fyrrakvöld. Saga ÍA er glæsileg en liðið hefur átján sinnum orðið Íslandsmeistari. KV var hins vegar stofnað fyrir áratug af nokkrum KR-ingum sem vildu halda áfram að spila fótbolta eftir að hafa klárað 2. flokk en komust ekki í meistaraflokk KR. Páll var í þeim hópi. „Þá fór maður á æfingar hjá hinum og þessum liðum en alltaf var það eitthvað sem togaði mann aftur í Vesturbæinn. Maður vildi bara spila fótbolta á sínum heimavelli,“ segir Páll en í september 2004 stofnaði hann KV ásamt tíu vinum sínum. Síðan þá hefur uppgangurinn verið mikill og í haust var hápunktinum náð þegar liðið vann sér sæti í 1. deildinni. Um svipað leyti féll ÍA úr Pepsi-deildinni og því ljóst að þessi lið myndu mætast í deildarleik. „Ég og við allir höfðum margoft komið upp á Skaga sem stuðningsmenn KR. Oft kom maður hundfúll til baka, hvort sem er með Akraborginni eða í gegnum göngin. Við vorum því afar spenntir fyrir þessum leik,“ lýsir Páll. Sigurinn var ekki síður kærkominn fyrir KV sem hefur verið í botnbaráttu framan af tímabili. Stigin þrjú eru því liðinu afar dýrmæt og segir Páll að verkefni liðsins sé ljóst. „Fyrst og fremst að festa okkur í sessi í 1. deildinni og eftir það horfum við fram á veginn,“ segir hann en Páll hugsar ekki lengra fram í tímann en eitt tímabil í einu. „Við stefnum þó eins hátt og við getum,“ segir Páll. KV er vitaskuld nátengt KR en flestir leikmenn liðsins eru uppaldir í síðarnefnda liðinu. Þessi lið hafa enn ekki mæst í mótsleik en Páll segir að það verði í grunninn eins og hver annar leikur. „Það verður leikur tveggja liða og þá stend ég auðvitað með mínum mönnum í KV. Annars er ég KR-ingur og það mun ekkert breytast.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti „Ég má ekki segja leyndarmál“ Körfubolti Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn Ellefu mörk í Mosfellsbænum Íslenski boltinn „Einvígið fer ekki á einum manni“ Handbolti Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Sport ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Handbolti Jasmín Erla: „Mér fannst við bara helvíti góðar“ Fótbolti Fékk sex leikja bann fyrir hómófóbíu en ekki rasisma Fótbolti Fleiri fréttir „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Ellefu mörk í Mosfellsbænum Uppgjör: Víkingur R. - Stjarnan 2-1 | Draumabyrjun Víkings Flest mörk í 67 ár Uppgjörið : Breiðablik - Þróttur R. 2-0 | Íslandsmeistararnir reyndust of stór biti Unglingalandsliðsmaður frá Bodö/Glimt til ÍBV Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn „Ef hann er ekki með þá fer allt til fjandans“ Besta-spá kvenna 2026: Baráttan um þann stóra Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Sló met Eiðs Smára Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk „Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ „Fólk má hafa sínar skoðanir“ „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ „Geðveikt að fá fulla Þórsstúku á nýjum velli“ Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri Þór Ak. - Fram 1-0 | Aron Birkir hélt markinu hreinu í vígsluleiknum Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum Sjá meira