Það er ekki hægt annað en að hrífast með Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 19. september 2014 11:00 "Ég kem nokkrum sinnum á ári til Íslands og sæki mér orku,“ Guðrún Ingimars. Mynd/úr einkasafni
Rastrelli kvartettinn hefur spilað í mörgum stærstu tónleikasölum heims.Mynd/Úr einkasafni „Þessum strákum hefur skotið upp á stjörnuhimininn og þeir hafa spilað í mörgum stærstu tónleikasölum heims. Það er ekki hægt annað en hrífast með þeim á tónleikum, það er svo mikill kraftur í þeim og gleði. Ég er alsæl með að hafa náð að negla þá,“ segir Guðrún Ingimarsdóttir söngkona sem heldur tvenna tónleika með Rastrelli-sellókvartettinum um helgina, í Reykholtskirkju á morgun klukkan 16 og í Listasafni Íslands á sunnudag klukkan 20. Guðrún segir Rastrelli hafa skapað sér sérstöðu með sinni hljóðfæraskipan og dagskrá. Félagarnir eru rússneskir en Guðrún kynntist þeim í Þýskalandi þar sem hún hefur verið búsett í 19 ár. „Þetta er skemmtilegasta sveit sem ég kem fram með,“ segir hún og lofar fjölbreyttum tónleikum. „Við verðum með klassísk verk og nokkur íslensk lög fyrir hlé en strákarnir eru voða góðir í djassi og við verðum með djass, tangó og bossanóva eftir hlé.“ Guðrún er alin upp á Hvanneyri í Borgarfirði og kveðst hafa byrjað að syngja bítlalög áður en hún fór að tala. Eftir nám í Söngskólanum hjá Elínu Ósk Óskarsdóttur fór hún í framhaldsnám, fyrst í London og svo í Stuttgart. Þar býr hún enn. En hvernig er daglegt líf? Veit hún alltaf hvað við tekur eftir morgundaginn? „Nei, oft er stuttur fyrirvari. Á árum áður var allt planað langt fram í tímann í Þýskalandi en þróunin er sú að undirbúningstími okkar söngvaranna er alltaf að styttast. Í Þýskalandi eru samt enn stærstu tækifærin fyrir söngvara. Þar er vel stutt við menningarlíf og tónlistararfleifðin er sterk. Þaðan er líka stutt að fljúga heim. Enda kem ég nokkrum sinnum á ári til Íslands og sæki mér orku.“
Menning Mest lesið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira