„Við lögðumst í smá grúsk og flytjum lög og ljóð sem tengjast þeim þremur árum sem Halldór Laxness dvaldi í Bandaríkjunum og Kanada á þriðja tug 20. aldar.
Það er fjölbreytt efni.“ segir Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona sem syngur í Gljúfrasteini á sunnudaginn við undirleik Ástríðar Öldu Sigurðardóttur píanóleikara.
Á efnisskránni eru bæði íslensk og bandarísk sönglög eftir tónsmiðina Atla Heimi Sveinsson, Gunnar Reyni Sveinsson, Jón Þórarinsson, Amy Beach, Ernest Charles, George Gershwin og líka amerísk þjóðlög í útsetningu Aarons Copland.
Ingibjörg segir bæði um að ræða tónlist við ljóð úr sögum sem Laxness var að vinna með á fyrrgreindum tíma, eins og Sölku Völku og Sjálfstæðu fólki og lög sem hann hefði getað heyrt vestanhafs, bæði í alvarlegri og léttari kantinum.
Tónleikarnir hefjast klukkan 16. Aðangur kostar 1.500 krónur.
Alvarleg lög og í léttari kantinum
