Fuglatónleikar, aríur og fingraflugeldar Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 19. júní 2014 13:00 Carlos Cara Aguillera, Ástríður Alda Sigurðardóttir, Helga Þóra Björgvinsdóttir, Grímur Helgason, Hafdís Vigfúsdóttir og Kristján Karl Bragason. Á myndina vantar Ellu Völu Ármannsdóttur og Margréti Hrafnsdóttur. Mynd/Vigfús Hallgrímsson „
Mesta nýnæmið er kannski fuglatónleikarnir á sólstöðum sem verða haldnir í samvinnu við heimamanninn Hjörleif Hjartarson,“ segir Kristján Karl Bragason píanóleikari, spurður út í dagskrá tónlistarhátíðarinnar Bergmáls á Dalvík. Hátíðin er í Menningarhúsinu Bergi og byrjar í kvöld klukkan átta með fyrstu tónleikunum af þrennum. Þá hljóma verk gamalla meistara, meðal annars Svíta úr Sögu dátans eftir Stravinskí og Fiðlusónata Mozarts í e-moll. Þótt Kristján Karl búi í Reykjavík núna kveðst hann vera norðanmaður, meira að segja frá Dalvík. Þetta er fimmta Bergmálshátíðin sem hann stendur fyrir ásamt kærustu sinni, Hafdísi Vigfúsdóttur flautuleikara, og Grími Helgasyni klarinettuleikara. Að þessu sinni hafa þau fengið fimm tónlistarmenn í lið með sér. Dagskráin ber keim af árstíðinni, að minnsta kosti fuglatónlistin sem er á tónleikunum 21. júní. Hvernig útskýrir Kristján Karl hana? „Kvöldið byrjar á að Hjörleifur Hjartarson leiðir gesti um friðland fuglanna. Sú ferð byrjar klukkan átta og tekur kannski einn og hálfan tíma, svo fara gestir í Berg og fá sér kaffi og tónleikarnir hefjast klukkan tíu. Þar verða meðal annars verk sem tengjast fuglum og fuglasöng, bæði þjóðlagaútsetningar og frumsamin verk. Það er mikill söngur á þeim tónleikum, Margrét Hrafnsdóttir sér um hann. Margrét bjó í Stuttgart í ein 15 ár en flutti heim í fyrra eins og mörg okkar og þekkir til á Dalvík, bjó þar í tvö ár fyrir mörgum árum, þannig að hún er pínu að koma heim líka.“ Lokatónleikarnir verða á sunnudaginn, þeir kallast Aríur og fingraflugeldar og Kristján Karl segir það lýsa tónleikunum vel. „Þar eru tæknilega erfið verk sem reyna á hæfni flytjenda. Til dæmis stórt stykki eftir króatískt tónskáld, Stjepan Sulek. Hann er ekkert að hlífa spilurunum sem eru í þessu tilfelli ég á píanó og Carlos Caro Aguilera á básúnu. En það er auðvitað bara eitt verk af mörgum,“ segir Kristján Karl og kveðst vona að fólk skelli sér á Bergmál. Aðgangur á einstaka tónleika er 2.500 krónur, passi á alla þrenna tónleikana kostar 5.000 en ókeypis er fyrir 25 ára og yngri.
Menning Mest lesið „Hugsa fallega til stelpunnar sem ég var þá“ Tíska og hönnun Kristján Einar leitar sér aðstoðar Lífið Hætta með Þarf alltaf að vera grín? af persónulegum ástæðum Lífið Kaupir fjórða húsið við sömu götu Lífið Er hægt að komast yfir framhjáhald? Lífið Kim Novak heiðursgestur RIFF Bíó og sjónvarp Íslenskur Hollywood-leikari selur íbúð í Seljahverfinu Lífið Hrósar eiginkonu Bruce Willis fyrir umönnun leikarans Lífið Þjóðbúningurinn aðal skvísuflíkin í dag Tíska og hönnun Yngsti Íslendingurinn frá upphafi sem safnar skákstigum Lífið Fleiri fréttir Stórtónleikar og flugeldasýning að vanda á Ljósanótt Neðanjarðarpartý og menningarveisla fyrir öll vit Ný viðbygging við Þjóðleikhúsið „langþráður draumur“ Skammar vini sína: „Hættum Happy birthday á Facebook“ Klórar sér í kollinum yfir nýrri göngubrú: Margt „mjög sérstakt“ sem menn hafi búið til síðustu ár Ráðin nýr verkefnastjóri menningar í Kópavogi Ljósbrot tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Sjá meira