Íslenska kosningarannsóknin 30 ára: Meiri spenna og sveiflur Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 13. maí 2014 07:48 Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðiprófessor hefur stýrt rannsókn á kosningum frá upphafi, eða í 30 ár. vísir/gva
Ólafur Þ. Harðarson er sannkallaður faðir Íslensku kosningarannsóknarinnar. Hann hefur stýrt henni frá byrjun og kannað kosningahegðun Íslendinga í níu alþingiskosningum. Hann segir síðustu þrjátíu árin hafa verið mjög tíðindasamt tímabil í flokkakerfinu. „Megineinkennin eru uppstokkun á vinstri vængnum með Samfylkingu og Vinstri grænum, auk margra skammlífra flokka. Styrkleikahlutföll gömlu flokkanna hafa líka breyst. Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið með 25 prósenta fylgi tvennar kosningar í röð. Framsóknarflokkurinn flaug upp í síðustu kosningum en er nú aftur kominn niður í sitt venjubundna 15 prósenta fylgi. Ef þessi þróun heldur áfram eru þessir tveir flokkar eingöngu með 40 prósent atkvæða samanlagt og það eru meiriháttar tíðindi því lengst af öldinni hafa þeir oftast haft styrk til að mynda einir meirihlutastjórn.“Meiri áhugi á pólitík Áhugi landsmanna á stjórnmálum hefur verið kannaður frá 1983 en undanfarin ár hefur mýtan um áhugaleysi á pólitík verið áberandi í fjölmiðlum. „Kjörsókn hefur minnkað örlítið en ekki áhuginn. Árið 1983 voru innan við 20 prósent sem sögðust hafa mikinn eða mjög mikinn áhuga á pólitík en frá árinu 2003 hefur þessi tala verið um 30 prósent. Þannig að breytingin er í áttina að auknum áhuga og er þetta gott dæmi um sleggjudóma í spjallþáttum þar sem ályktað er án þess að hafa nokkuð í höndunum.“ Frá árinu 2009 hefur traust á stjórnmálamönnum farið minnkandi og hreyfanleiki á kjósendum hefur aukist. „Árið 1983 skipti innan við fjórðungur kjósenda um flokk milli kosninga en eftir það hafa 30-35 prósent kjósenda skipt um flokk. Árið 2013 skiptu 45 prósent kjósenda um flokk. Þetta gefur til kynna vaxandi óróleika í kerfinu.“ Ólafur segir þessa þróun breyta stjórnmálum því eftir því sem kjósendur eru lausari við flokka og færa sig meira á milli auki það áhættu flokkanna. Stórsigrar og gífurlegt fylgistap verða mun líklegri og bendir hann á að tap stjórnarflokkanna í síðustu kosningum hafi verið tapmet í Íslandssögunni.Hægri-vinstri kvarðinn lifir Í kosningarannsókninni hafa kjósendur verið beðnir um að staðsetja sig og stjórnmálaflokka á hægri-vinstri kvarðann. Niðurstöðurnar sýna að kvarðinn sé langt frá því að vera úreltur. „Kjósendur eru með nokkuð skýra mynd af því hvar þeir vilja staðsetja flokka á kvarðann og eru tiltölulega sammála um hvernig eigi að gera það. Það segir okkur að hægri-vinstri kvarðinn er alvöru kort sem kjósendur nota til að átta sig á pólitísku landslagi.“ Kosningahegðun hefur löngum verið tengd stéttarstöðu. Kjósendum er þá skipt eftir því hvort þeir vinna líkamlega vinnu eða ekki og gamla myndin er að verkafólk kjósi verkalýðsflokka. „Strax árið 1983 kom í ljós að þessi tengsl voru mjög veik á Íslandi. Þetta hefur veikst enn frekar og jafnvel snúist við. Þannig að verkafólk kýs frekar hægri flokka en vinstri. Framsóknarflokkurinn hefur verið heldur sterkari meðal þeirra kjósenda sem hafa stutta skólagöngu að baki og allra síðustu árin hefur orðið sú athyglisverða þróun að arftakar gömlu verkalýðsflokkanna, Samfylkingin og Vinstri græn, hafa verið mun sterkari meðal kjósenda með háskólapróf.“Kjósendur ákveða sig á kjördag Út frá þessari þróun í alþingiskosningum má vænta þess að sveitarstjórnarkosningarnar fram undan verði spennandi. „Þessi hreyfanleiki kjósenda býður upp á stærri sveiflur og þær þurfa ekki að fara allar í sömu áttina og geta verið mismunandi eftir sveitarfélögum. Þetta gefur nýjum flokkum raunverulega möguleika.“ Aðspurður um forspárgildi kosningakannana í slíku kosningaumhverfi segir Ólafur að þær geti breyst verulega rétt fyrir kosningar. „Fólk er lengur að gera upp hug sinn og margir ákveða sig jafnvel á kjördag. Það er í rauninni ekki fyrr en farið er að nálgast kosningarnar verulega sem hægt er að fara að taka mjög mikið mark á könnunum. Kannanir þremur vikum fyrir kosningar geta verið langt frá úrslitum því það geta orðið miklar breytingar á síðustu metrunum.“ Í tilefni afmælishátíðarinnar á fimmtudag verða gögn Íslensku kosningarannsóknarinnar opnuð formlega með nýju viðmóti. Þá verður hægt að skoða niðurstöður úr Íslensku kosningarannsókninni án þess að þurfa til þess sérhæfð tölfræðiforrit og þannig öllum gert kleift, sem á því hafa áhuga, að skoða og greina gögnin.Allar fréttir af sveitarstjórnarkosningunum 2014 má nálgast á Kosningavef Vísis, visir.is/kosningar.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Innlent Fleiri fréttir Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Sjá meira