Lokaspretturinn á Alþingi Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 13. maí 2014 07:48 Kvöldfundur var á Alþingi í gær enda styttist í að þingið fari í sumarfrí. Fréttablaðið/Pjetur
Önnur umræða um frumvarp ríkisstjórnarinnar um séreignarsparnað hófst á Alþingi síðdegis í gær og stóð fram eftir kvöldi. Í áliti meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar segir að frumvarpið feli í sér hvata til aukinnar vinnu og sparnaðar. Til lengri tíma litið muni aukning sparnaðar koma fram í því að fólk eignist meiri hlut en ella í fasteignum sínum. Með frumvarpinu sé komið til móts við heimilin í landinu með almennum aðgerðum án þess að fórna sjálfbærni og stöðugleika við stjórnun ríkisfjármála. Minnihluti efnahags- og viðskiptanefndar segir að úrræðið muni hvetja þá sem ekki spara í séreign til að hefja slíkan sparnað. Að öðru leyti sé óvíst hvort úrræði frumvarpsins muni hafa aukinn sparnað í för með sér. Þá er varað við efnahagslegum afleiðingum frumvarpsins og minnihlutinn gagnrýnir að ákvæði um séreignarsparnað nýtist þeim sem hærri hafa tekjurnar mun betur en hinum tekjulágu. Þingstörf gengu hratt fyrripart dags í gær. Níu þingsályktunartillögur voru samþykktar, þar má nefna þingsályktunartillögu um endurskoðun laga og reglna með tilliti til myglusveppa og tjóns af þeirra völdum. Mikill samhljómur var í atkvæðagreiðslunni en hún var samþykkt af 58 þingmönnum. Tillagan er um að umhverfis- og auðlindaráðherra skipi starfshóp sem taki til heildstæðrar endurskoðunar lög og reglur á sviði byggingarmála með tilliti til myglusveppa og þess tjóns sem þeir geta valdið. Af öðrum tillögum má nefna að samþykkt var þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun 2014 til 2017 auk stuðnings við sjálfsákvörðunarrétt íbúa Vestur-Sahara. Þá voru greidd atkvæði um mörg frumvörp ríkisstjórnarinnar að lokinni annarri umræðu.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Fleiri fréttir Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Sjá meira