Bíó og sjónvarp

12 Years a Slave valin besta myndin

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Óskarsverðlaunin verða afhent á morgun. Vísir leitaði til nokkurra álitsgjafa til að spá í spilin fyrir stóra daginn. Nánast allir eru þeir sammála um að þræladramað 12 Years a Slave verði valið besta myndin og að Matthew McConaughey og Cate Blanchett verði verðlaunuð fyrir frammistöðu sína í Dallas Buyers Club annars vegar og Blue Jasmine hins vegar.

Besta mynd

Tilnefndar eru:

American Hustle

Captain Phillips

Nebraska

Dallas Buyers club

Gravity

Her

Philomena

12 Years a Slave

The Wolf of Wall Street

12 Years a Slave

„Frambærileg, sannsöguleg, stútfull af þrælum, eymd, von og leikurum sem tárast í nærmyndum. Þetta er neglt!“

Tómas Valgeirsson, ritstjóri biovefurinn.is

12 Years a Slave

„Ég spái því að 12 Years a Slave taki þessi verðlaun, sem væri skemmtilegt vegna þess að líklega er hún besta tilnefnda myndin.“

Þórarinn Þórarinsson, kvikmyndagagnrýnandi hjá svarthofdi.is

Dallas Buyers Club

„12 Years a Slave hefur raðað inn verðlaunum. Væri ég sjálf að velja myndi mitt atkvæði fara á Dallas Buyers Club, sem mér fannst áhrifarík og sláandi saga.“

Hulda Geirsdóttir,kvikmyndagagnrýnandi hjá Rás 2

12 Years a Slave

Árni Björn Helgason, yfirmaður erlendrar framleiðslu hjá Sagafilm

12 Years a Slave

„Óhemju góð mynd og verður vel að verðlaununum komin.“

Sigríður Pétursdóttir,kvikmyndafræðingur





Besti leikstjóri

Tilnefndir eru:

David O. Russell - American Hustle

Alfonso Cuarón - Gravity

Alexander Payne - Nebraska

Steve McQueen - 12 Years a Slave

Martin Scorsese - The Wolf of Wall Street

Alfonso Cuarón

„Þessi maður tók ekki aðeins stórt skref heldur þyngdarlaust tæknihopp í þróunardeild bíótöfranna og með hans aðstoð var Sandra Bullock aldrei nokkurn tímann of pirrandi.“

Tómas Valgeirsson, ritstjóri biovefurinn.is

Alfonso Cuarón

„Alfonso Cuarón tekur þetta fyrir Gravity. Alla jafna tekur sama myndin leikstjóraverðlaunin og verðlaun fyrir bestu myndina.“

Þórarinn Þórarinsson, kvikmyndagagnrýnandi hjá svarthofdi.is

A. Cuarón eða S. McQueen

„Margir telja Alfonso Cuarón fyrir Gravity sigurstranglegan. Einhverjir telja að akademían muni velja Steve McQueen. Sjáum hvað setur.“

Hulda Geirsdóttir, kvikmyndagagnrýnandi hjá Rás 2

Alfonso Cuarón

Árni Björn Helgason, yfirmaður erlendrar framleiðslu hjá Sagafilm

Alfonso Cuarón

„Hefur fengið flest hugsanleg verðlaun að undanförnu og allar líkur á að hann fái þessi líka.“

Sigríður Pétursdóttir, kvikmyndafræðingur





Besti leikari í aðalhlutverki

Tilnefndir eru:

Christian Bale - American Hustle

Bruce Dern - Nebraska

Leonardo DiCaprio - The Wolf of Wall Street

Chiwetel Ejiofor - 12 Years a Slave

Matthew McConaughey - Dallas Buyers Club

Matthew McConaughey

„Fyrir það að stuða þessum allsvakalega krafti í ferilinn á svo stuttum tíma og trompa það síðan með Dallas, ætti að vera búið að loka þessum díl.“

Tómas Valgeirsson, ritstjóri biovefurinn.is

Leonardo DiCaprio

„Nú er bara komið að Leo litla. Það er ekkert flóknara.“

Þórarinn Þórarinsson, kvikmyndagagnrýnandi hjá svarthofdi.is

Matthew McConaughey

„McConaughey fer ótrúlega vel með þetta hlutverk og nær þarna nýjum hæðum í leik eftir heldur sveiflukenndan feril fram að þessu.“

Hulda Geirsdóttir, kvikmyndagagnrýnandi hjá Rás 2

Matthew McConaughey

„Af augljósum ástæðum. Þetta er hans ár.“

Árni Björn Helgason, yfirmaður erlendrar framleiðslu hjá Sagafilm

Matthew McConaughey

„Sjálf er ég ekki síður hrifin af Chiwetel Ejiofor en held að McConaughey fari heim með styttuna.“

Sigríður Pétursdóttir, kvikmyndafræðingur





Besta leikkona í aðalhlutverki

Tilnefndar eru:

Amy Adams - American Hustle

Cate Blanchett - Blue Jasmine

Sandra Bullock - Gravity

Judi Dench - Philomena

Meryl Streep - August: Osage County

Cate Blanchett

„Sjálfsagt mál … vonandi. Cate Blanchett var ótrúleg í þessari mynd. Lokasenan ein og sér réttlætir þennan sigur.“

Tómas Valgeirsson, ritstjóri biovefurinn.is

Cate Blanchett

„Hún er bara frábær í Blue Jasmine og sýnir ekta svona Óskarsverðlaunaleik. Svo held ég bara með henni.“

Þórarinn Þórarinsson, kvikmyndagagnrýnandi hjá svarthofdi.is

Cate Blanchett

„Yfirburða frammistaða þó samkeppnin sé öflug í þessum flokki. Ef Blanchett vinnur ekki, þá líklega Amy Adams fyrir American Hustle.“

Hulda Geirsdóttir, kvikmyndagagnrýnandi hjá Rás 2

Cate Blanchett

Árni Björn Helgason, yfirmaður erlendrar framleiðslu hjá Sagafilm

Cate Blanchett

„Hún hefur fengið nánast öll verðlaunin undanfarið. Þessi flokkur er sterkur en ég sakna þess að sjá ekki Emmu Thompson tilnefnda.“

Sigríður Pétursdóttir, kvikmyndafræðingur





Besti leikari í aukahlutverki

Tilnefndir eru:

Barkhad Abdi - Captain Phillips

Bradley Cooper - American Hustle

Michael Fassbender - 12 Years a Slave

Jonah Hill - The Wolf of Wall Street

Jared Leto - Dallas Buyers Club

Jared Leto

„Þetta kallast að sýna nýja, gerólíka hlið á sér. Jared ætti að vera löngu búinn að æfa ræðuna, þó Fassbend­er hafi reyndar verið magnaður einnig.“

Tómas Valgeirsson, ritstjóri biovefurinn.is

Barkhad Abdi

„Hann stendur sig frábærlega í myndinni og Akademían er hrifin af svona ævintýrum þar sem einhver sem aldrei hefur leikið áður brillerar.“

Þórarinn Þórarinsson, kvikmyndagagnrýnandi hjá svarthofdi.is

Jared Leto eða Michael Fassbender

„Þarna sveiflast ég á milli Jareds Leto fyrir Dallas Buyers Club og Michaels Fassbender fyrir 12 years a slave. Afskaplega ólík hlutverk, en mögnuð frammistaða.“

Hulda Geirsdóttir, kvikmyndagagnrýnandi hjá Rás 2

Jared Leto

Árni Björn Helgason, yfirmaður erlendrar framleiðslu hjá Sagafilm

Jared Leto

„Barkhad Abdi veitir honum nokkuð harða samkeppni þar sem hann kom svo á óvart með sínum sterka leik. Fassbender er líka í uppáhaldi hjá mér. “

Sigríður Pétursdóttir, kvikmyndafræðingur





Besta leikkona í aukahlutverki

Tilnefndar eru:

Sally Hawkins - Blue Jasmine

Jennifer Lawrence - American Hustle

Lupita Nyong‘o - 12 Years a Slave

Julia Roberts - August: Osage County

June Squibb - Nebraska

Lupita Nyong‘o

„Ef heimurinn hefur rétt aðeins róað sig á Jennifer-dýrkuninni þá vísa öll merki á Lupitu. Sú kann að stíga inn í Hollywood-sviðsljósið með hörku. Ógleymanleg.“

Tómas Valgeirsson, ritstjóri biovefurinn.is

Jennifer Lawrence

„Vegna þess að hún er æði. Hljóti hún verðlaunin nær hún því að taka við Óskar sem besta aðalleikkona og aukaleikona áður en hún verður 24 ára.

Þórarinn Þórarinsson, kvikmyndagagnrýnandi hjá svarthofdi.is

Jennifer Lawrence

„Jennifer Lawrence á þetta - trúi ekki öðru! Hún er stórkostleg í hlutverki sínu í American Hustle og þrátt fyrir að margir veðji á Lupita Nyong’o held ég að Lawrence hampi Óskar í annað sinn.“

Hulda Geirsdóttir, kvikmyndagagnrýnandi hjá Rás 2

Lupita Nyong‘o

Árni Björn Helgason, yfirmaður erlendrar framleiðslu hjá Sagafilm

Jennifer Lawrence

„Hún safnar öllum verðlaunum sem hægt er þessi árin og virðist ósigrandi. Lupita Nyong‘o gæti komið á óvart og nælt í verðlaunin en ég tel það ólíklegt.“

Sigríður Pétursdóttir, kvikmyndafræðingur










Fleiri fréttir

Sjá meira


×