Umdeildur leiðtogi borinn til grafar Guðsteinn Bjarnason skrifar 14. janúar 2014 06:00 Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra, og Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, standa þarna sitt hvoru megin við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og eiginkonu hans, Söru Netanjahú, á minningarathöfn í gær. nordicphotos/AFP
Ráðamenn frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Þýskalandi voru meðal þeirra sem vottuðu Aríel Sharon virðingu sína, þegar haldin var minningarathöfn um hann í gær. Hans var þar minnst sem mikilfenglegs þjóðarleiðtoga, en aðrir urðu til þess að rifja upp grimmilegan feril hans sem fjöldamorðingja. Sharon var forsætisráðherra Ísraels frá 2001 þar til hann fékk heilablóðfall í ársbyrjun 2006. Eftir það lá hann í dái í átta ár þangað til hann lést nú á laugardaginn. Áður en hann varð forsætisráðherra hafði hann átt langan feril sem hermaður, herforingi og hermálaráðherra og bar þá ábyrgð á mörgum stríðsglæpum. „Lát hans er enn ein áminningin um áralöng mannréttindabrot hafa engu skilað í þá átt að færa okkur nær friði milli Ísraela og Palestínumanna,“ segir Sarah Lea Whitson hjá samtökunum Human Rights Watch, sem hafa eins og fleiri mannréttindasmtök óspart minnt á dekkri hliðarnar á ferli Sharons. Þekktust eru þar fjöldamorðin í Sabra og Sjatila árið 1982, þar sem ábyrgð hans var óbein í þeim skilningi að stjórnaði þeim ekki sjálfur, en einnig hefur verið rifjað upp að árið 1953, þegar hann var 25 ára, var hann yfirmaður ísraelskrar vígasveitar sem tók að sér að hefna fyrir árásir Palestínumanna. Hann stjórnaði þá meðal annars árás á bæinn Kibja á Vesturbakkanum. Meira en 40 hús voru þar sprengd í loft upp og kostuðu þær aðgerðir 69 íbúa þar lífið. Um helmingur hinna látnu voru konur og börn. Sharon sagðist síðar hafa haldið að húsin væru tóm. Eftir að Sharon komst til valda árið 2001 sneri hann að nokkru við blaðinu og tók meðal annars af skarið um að draga ísraelska herinn burt frá Gasasvæðinu. Hann tók einnig þann pól í hæðina, sem var óvenjulegt meðal ísraelskra ráðamanna, að Ísraelar ættu ekki endilega skilyrðislausan rétt til alls landsvæðis Palestínumanna á hinum hernumda Vesturbakka og Gasasvæði. Þessi breytta afstaða féll í misjafnan farveg meðal Ísraela, sem sumir hverjir töldu hann þar hafa svikið eigin málstað.
Mest lesið Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Innlent Talinn hafa komið til landsins til að stela Innlent Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Innlent Fleiri fréttir Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Sjá meira