Emírinn í Dúbaí býður íslenskum víkingum á hátíð Brjánn Jónasson skrifar 14. janúar 2014 08:59 Stofnaður hefur verið karlakór innan víkingafélagsins Rimmugýgjar. Fréttablaðið leit í heimsókn á fyrstu æfingu kórsins í gærkvöldi. Fréttablaðið/Valli
Fólk Fimmtán íslenskum víkingum úr víkingafélaginu Rimmugýgi hefur verið boðið að taka þátt í 400 manna víkingahátíð sem haldin verður í Dúbaí í lok mars. Emírinn í Dúbaí greiðir ferðakostnað, uppihald og dagpeninga á meðan á hátíðinni stendur. „Það eru mörg þúsund víkingar í Evrópu og víðar, og það er gríðarlega mikil eftirspurn eftir því að komast á þessa hátíð, svo það er frábært að fá svona mörg pláss,“ segir Hafsteinn Pétursson, jarl Rimmugýgjar. Hann segir að hátt í 70 félagsmenn hafi óskað eftir því að fara til Dúbaí. „Við þurftum að fara í gegnum mjög hart forval til þess að velja álitlegustu kappana,“ segir Hafsteinn. „Við bjuggum til nokkurs konar fegurðarsamkeppni, ef svo má segja, þar sem nokkrir fengu sæti, og svo var dregið um afganginn af lausum sætum.“ Hafsteinn segir að sérstaklega hafi verið óskað eftir tónlistarfólki. Þess vegna séu tvær söngkonur í hópnum ásamt þrettán vönum bardagamönnum. Reyndar hefur nú verið stofnaður karlakór innan Rimmugýgjar, og er lögð mikil áhersla á að þrettánmenningarnir æfi söng af kappi fyrir ferðina. Hátíðin stendur í fimm daga, en víkingarnir verða við undirbúning og frágang í tvo daga fyrir og eftir hátíðina þar sem þeim verður boðið í skoðunarferðir. „Þetta verður með svipuðu sniði og víkingahátíðin í Hafnarfirði, en auðvitað stærra. Við verðum á ströndinni, og munum berjast í tveimur orrustum á þurru landi á hverjum degi. Svo verður ein sjóorrusta á dag við ströndina sem við munum taka þátt í. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig það mun fara fram, en það verður örugglega mjög gaman,“ segir Hafsteinn. Hann segir að flytja eigi víkingaskip til Dúbaí til að halda sjóorrusturnar. Liðsmenn Rimmugýgjar hafa ekki reynslu af sjóorrustum, þó þeir hafi róið víkingaskipum og tekið land á þeim. Hafsteinn óttast ekki að menningarmunurinn verði víkingunum erfiður. Áfengisneysla er bönnuð í Dúbaí, en á því eru undantekningar. Hátíðin verður á lokuðu svæði og verður leyfilegt að drekka áfengi á því svæði þegar því hefur verið lokað fyrir almenningi í lok hvers dags. „Þeir bjóða okkur meira að segja upp á einn bjór á dag, eftir að allir eru farnir, þannig að menn geta svalað sér á einum öl eftir erfiðan dag í bardaga. Svo getum við keypt meira ef við kærum okkur um,“ segir Hafsteinn. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er þetta það lengsta sem íslenskir víkingar hafa ferðast á víkingahátíð. Haldnar hafa verið hátíðir í Waco í Texas sem íslenskir víkingar hafa farið á, en það er örlítið nær Íslandi en Dúbaí.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira