Guðmundur: Vont fyrir Blika að missa Ólaf Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. apríl 2014 13:15 Guðmundur Benediktsson. Vísir/Anton
Guðmundur Benediktsson segist hafa lært heilmikið af því að starfa með Ólafi Kristjánssyni síðustu ár. Í dag var tilkynnt að Guðmundur muni taka við Breiðabliki af Ólafi sem hefur verið ráðinn þjálfari danska úrvalsdeildarfélagsins Nordsjælland. „Mér líst mjög vel á þetta og er þakklátur fyrir þetta frábæra tækifæri,“ sagði Guðmundur í samtali við Vísi í dag. „Ég er ákaflega ánægður með að Breiðablik skuli treysta mér fyrir því.“ Ólafur mun þó stýra Blikum þar til hann lætur af störfum þann 2. júní. „Við höldum því áfram okkar vinnu líkt og við höfum gert undanfarin ár,“ sagði Guðmundur sem hefur verið aðstoðarmaður Ólafs frá því að hann hætti sem þjálfari Selfoss haustið 2010. „Ég leyfi mér þó að segja að það sé vont fyrir Breiðablik að missa mann sem hefur unnið gott starf fyrir félagið allt í að verða átta ár.“ Hann segir þó að margt hafi breyst hjá sér síðan hann þjálfaði Selfyssinga á sínum tíma. „Þegar ég tók við Selfossi á sínum tíma var ég glænýr og hafði aldrei þjálfað neitt. Í dag er ég eldri, þyngri og reynslunni ríkari,“ bætti Guðmundur við. „Ég hef verið það heppinn að fá að vinna með Óla í þennan tíma en hann er klárlega besti þjálfari landsins að mínu mati. Þessi viðurkenning sýnir það enn frekar.“ Guðmundur er einna þekktastur fyrir störf sín sem íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport og hefur hann vilja til að halda þeim störfum áfram. „Þetta kom upp með það skömmum fyrirvara að það á enn eftir að finna lausn. Það mál er í vinnslu og er ekki komið á hreint hvað verður,“ sagði Guðmundur.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Guðmundur tekur við Breiðabliki Guðmundur Benediktsson mun stýra liði Breiðabliks í Pepsi-deild karla sumar þar sem að Ólafur Kristjánsson er hættur störfum hjá félaginu. 22. apríl 2014 08:43 BT: Ólafur á leið til Nordsjælland Danska blaðið BT staðhæfir að danska úrvalsdeildarfélagið Nordsjælland eigi í viðræðum við Ólaf Kristjánsson, þjálfara Breiðabliks. 22. apríl 2014 06:52 Ólafur: Einbeiti mér nú að Blikum Ólafur Kristjánsson segir í viðtali sem birtist á heimasíðu Nordsjælland að hann hlakki til að takast á við nýjar áskoranir. 22. apríl 2014 09:15 Ólafur: Tökum upp táraklútana síðar Ólafur Kristjánsson, fráfarandi þjálfari Breiðabliks, segir að hann hafi vitað af áhuga Nordsjælland í nokkurn tíma. 22. apríl 2014 09:58 Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira
Guðmundur tekur við Breiðabliki Guðmundur Benediktsson mun stýra liði Breiðabliks í Pepsi-deild karla sumar þar sem að Ólafur Kristjánsson er hættur störfum hjá félaginu. 22. apríl 2014 08:43
BT: Ólafur á leið til Nordsjælland Danska blaðið BT staðhæfir að danska úrvalsdeildarfélagið Nordsjælland eigi í viðræðum við Ólaf Kristjánsson, þjálfara Breiðabliks. 22. apríl 2014 06:52
Ólafur: Einbeiti mér nú að Blikum Ólafur Kristjánsson segir í viðtali sem birtist á heimasíðu Nordsjælland að hann hlakki til að takast á við nýjar áskoranir. 22. apríl 2014 09:15
Ólafur: Tökum upp táraklútana síðar Ólafur Kristjánsson, fráfarandi þjálfari Breiðabliks, segir að hann hafi vitað af áhuga Nordsjælland í nokkurn tíma. 22. apríl 2014 09:58