Fólk liggur á gluggum hjá Önnu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 4. júní 2014 08:00 Sól skein á húsfreyjuna á Holtagötu 1 og skrautgarðinn hennar um síðustu helgi. Fréttablaðið/Garðar „
Fólk labbar oft beint inn í garðinn án þess að spyrja um leyfi. Okkur er svo sem alveg sama,“ segir Anna Gunnarsdóttir þar sem hún situr á sólpallinum í fagurlega skreyttum garði sínum á Drangsnesi. Anna segir að óhægt sé um vik með hefðbundna garðrækt á Drangsnesi. Fyrir meira en tíu árum hafi hún og eiginmaður hennar, Birgir Guðmundson trillusjómaður, byrjað að aka í garðinn möl sem þau handmokuðu upp á pallbíl í fjörunni í þorpinu. Síðan hafi bæst við netakúlur, bátaskrúfur og margt fleira spennandi.Bátslíkan sem Guðbjörn Gunnarsson skar út. Birgir Guðmundsson bætti við möstrum og Anna sjálf skipverjum.Fréttablaðið/GarðarBróðirinn kemur í heimsókn og sker út Margir staldra skiljanlega við heimili Önnu og Birgis á Holtagötu. Auk þess sem hjónin hafa sjálf verið ötul við að bæta við skrautmunum hefur Guðbjörn Gunnarsson, bróðir Önnu, lagt hönd á plóg. Guðbjörn vandi komur sína á árlega Bryggjuhátíð á Drangsnesi og skar í hvert skipti út nýjan mun úr rekaviði fyrir garðinn hjá Birgi og Önnu. Þar á meðal er bátslíkneski, maður, kona og köttur.Húsið í brekkunniFallegir steinar frá mömmu og pabba „Svo erum við með fallega steina sem mamma og pabbi tíndu þegar við áttum heima á Fáskrúðsfirði. Eftir að þau fluttu til Reykjavíkur spurðu þau hvort við vildum steinana og þegar við fórum suður tókum við einn og einn kassa með heim. Þannig að við maðurinn minn höfum fengið að njóta þeirra,“ segir Anna sem hefur augun opin fyrir nýjum hlutum í garðinn.Skrautlegt umhverfiEr búðin opin? „Ég reyni alltaf að finna eitthvað. Í fyrra fann ég gamlan línubala sem ég flísalagði og hef fyrir tjörn með öndum. Maðurinn minn hefur sagað út blóm og ég hef málað þau. Þetta er mikil samvinna hjá okkur,“ segir Anna. Lóðin hjá Önnu og Birgi er ekki afgirt og ramba margir forvitnir ferðalangar þangað inn og taka myndir. Í sólskálanum eru ýmsir munir frá ferðalögum þeirra hjóna. Anna segir að stundum hafi fólk verið komið alla leið að glerinu og horft inn. „Það hefur jafnvel skeð tvisvar eða þrisvar þegar hurðin á sólskálanum er opin að fólk hefur verið komið inn og spurt hvenær búðin opni,“ segir Anna og hlær innilega.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira