Lífið

„Þetta var það flottasta sem maður hefur séð hér á Íslandi"

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bjarni Ben skemmti sér konunglega á tónleikunum.
Bjarni Ben skemmti sér konunglega á tónleikunum. Vísir/Andri Marinó/Pjetur
„Þetta var alveg á heimsmælikvarða,“ sagði Bjarni Benediksson fjármálaráðherra eftir tónleikana með Justin Timberlake í kvöld. Bjarni var mættur á svæðið með fjölskyldunni. Um sautján þúsund manns hlustuðu á bandaríska hjartaknúsarann í rúman einn og hálfa tíma í kvöld.

„Við fjölskyldan höfum áður farið á tónleika með þessum listamanni og ég get sagt alveg eins og er að þessir tónleikar í kvöld voru meiri upplifun. Ég held að það hafi gert mjög mikið að hlusta á hann í lokaðri tónleikahöll,“ segir Bjarni sem fór áður á tónleika með Timberlake á Parken í Kaupmannahöfn.

„Yngri krakkarnir í fjölskyldunni eru kannski meiri aðdáendur en við vorum mætt fimm saman hér í kvöld.“

Bjarni segir að svona tónleikar hafi aldrei áður verið haldnir hér á landi.

„Þetta var það flottasta sem maður hefur séð hér á Íslandi. Þetta var æðislegt og maður sá greinilega að það voru allir að skemmta sér konunglega.“




Tengdar fréttir

„Var svolítið eins og að taka strætó á busaballið"

Thelma Einarsdóttir og Davíð Valsson eru mætt á Justin Timberlake tónleikana í Kórnum. Þau lögðu bílnum sínum við Smáralind og tóku strætó að Kórnum. Þeim fannst þau heldur eldri en hinir gestirnir í strætóinum.

GusGus byrjuð: Salurinn að fyllast

Töluverður kliður er í salnum í Kórnum þar sem GusGus hóf leik upp úr klukkan hálf átta. Íslenska hljómsveitin á að koma gestum í gírinn áður en Justin Timberlake stígur á stokk klukkan 21.

Sérstakur safabar fyrir Justin

Samkvæmt heimildum Vísis hefur fyrirtækið Joe & The Juice opnað safabar baksviðs á tónleikum Justin Timberlake.

Stemningin inni í Kórnum

Fjölmargir eru komnir inn í salinn þótt Gus Gus hefji ekki leik fyrr en klukkan 19:30.

„Við ætlum að dansa til að gleyma“

"Útlitið segir nú ekki allt,“ sögðu tveir grjótharðir aðdáendur Justin Timberlake, fyrir utan Kórinn í kvöld. Þeir voru á leiðinni á tónleika með popparanum.

„Hann er mjög sætur"

"Við erum mjög spenntar fyrir tónleikunum,“ sögðu fjórar vinkonur fyrir utan Kórinn í kvöld. Hópurinn var á leiðinni á tónleika með stórstjörnunni Justin Timberlake í Kópavoginum.

Fólk flykktist á Justin

Ljósmyndari Vísis fylgdist með tónleikagestum mæta á svæðið í dag

Beðið eftir strætó

Að loknum vel heppnuðum tónleikum Justin Timberlake í Kórnum í Kópavogi í kvöld þurftu um sautján þúsund tónleikagestir að koma sér til síns heima.

Stærstu tónleikar sem haldnir hafa verið

Viðbúnaðar vegna tónleika stórstjörnunnar Justin Timberlake er sá mesti sem þekkist í kringum tónleika hér á landi og aðdáendur sem keyptu miða voru mættir snemma á tónleikastaðinn, sumir fimm klukkutímum áður en Timberlake stígur á svið.

Halda mikið upp á Justin Timberlake

Þessar stúlkur segjast vera miklir aðdáendur söngvarans. Þær mættu snemma, voru komnar fyrir utan Kórinn talsvert löngu fyrir opnun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×