Innlent

Logarnir sleiktu gaflinn

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Eldur kviknaði í geymslugámi í Vesturvör í Kópavogi um klukkan hálfeitt í nótt.
Eldur kviknaði í geymslugámi í Vesturvör í Kópavogi um klukkan hálfeitt í nótt.
Eldur kviknaði í geymslugámi í Vesturvör í Kópavogi um klukkan hálfeitt í nótt.

Gámurinn stóð upp við vegg á iðnaðarhúsnæði og þegar slökkvilið bar að garði voru logarnir farnir að sleikja gaflinn á húsinu. Vel gekk að slökkva bálið og náðist að koma í veg fyrir að eldurinn læsti sig í húsið. Þó munu einhverjar skemmdir vera á því að sögn slökkviliðs. Ekki er ljóst hvað varð þess valdandi að eldurinn blossaði upp og er málið nú í rannsókn lögreglu.

Þá voru fjórir ökumenn stöðvaðir víðsvegar um borgina vegna gruns um að aka undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×