Víkingar styrkja sóknarleikinn með tveimur Bretum Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. maí 2014 21:45 Michael Abnett í leik með Djúpmönnum. Vísir/Daníel
Pepsi-deildarlið Víkings hefur gengið frá árssamningi við enska vængmanninn MichaelAbnett og skoska framherjann MarkTaylor en þetta staðfesta forráðamenn Fossvogsfélagsins við Vísi. Abnett, sem er 24 ára gamall, kemur til Víkinga frá BÍ/Bolungarvík þar sem hann lék síðasta sumar sem og tímabilið 2011 undir stjórn GuðjónsÞórðarsonar. Hann hefur í heildina leikið 40 deildar- og bikarleiki með Djúpmönnum og skorað í þeim tvö mörk en hann spilaði ekki með liðinu sumarið 2012, þar sem hann fór aftur heim til Englands. Abnett er uppalinn hjá Crystal Palace en hefur einnig verið á mála hjá Mansfield Town, Lewes FC og Sutton United. Hann getur leikið á báðum vængjum og einnig sem bakvörður.Mark Taylor.Mynd/KilmarnockMark Taylor er skoskur, 21 árs gamall framherji, sem kemur til Víkinga frá Lanark United sem leikur í C-deildinni þar í landi. Hann er uppalinn hjá Rangers, þar sem hann spilaði eitt ár sem atvinnumaður, en var síðar á mála hjá Kilmarnock leiktíðina 2012/2013. Víkingar vonast til að þessir tveir leikmenn styrki sóknarleikinn sem hefur reynst Víkingum erfiður í byrjun tímabils. Nýliðarnir eru aðeins búnir að skora tvö mörk í fyrstu þremur umferðunum. Það hefur þó dugað til þess að innbyrða fjögur stig. Víkingar ætla þó ekki að semja við ZephaniahThomas, framherja frá Sankti Kristófer og Nevis, sem æft hefur með liðinu undanfarna daga og horfði á leik þess gegn Stjörnunni á mánudagskvöldið. Thomas hefur raðað inn mörkum í utandeildum enska boltans en þykir ekki vera í nægilega góðu formi til þess að hafa jákvæð áhrif á spilamennsku Víkinga. Skotinn Taylor er kominn til landsins en Abnett lendir á morgun. Víkingar vonast til að þeir fái báðir leikheimild fyrir leik liðsins gegn Fylki á mánudagskvöldið í Víkinni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Sport Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Enski boltinn Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna Körfubolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Handbolti Dagskráin í dag: Salah, Doc Zone og auðveld bráð Arsenal Sport Fleiri fréttir Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina KSÍ skiptir um mótakerfi og smíðar nýjan vef Sjá meira