Alfreð orðinn markahæsti leikmaður Heerenveen frá upphafi Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. mars 2014 20:34 Alfreð Finnbogason er markavél. Vísir/Getty
Heerenveen gerði jafntefli við NEC Nijmegen, 2-2, í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld og er í sjötta sæti deildarinnar með 44 stig eftir 29 umferðir. Það eru þó ekki stærstu tíðindi kvöldsins heldur eru þau að AlfreðFinnbogason, íslenski landsliðsframherjinn, skoraði annað mark Heerenveen úr vítaspyrnu á 45. mínútu og er þar með orðinn markahæsti leikmaður Heereneveen í hollensku úrvalsdeildinni frá upphafi. Þetta var 24. mark Alfreðs á tímabilinu en hann skoraði einnig 24 mörk í fyrra sem gerir samtals 48 mörk í 57 leikjum. Hann komst með markinu yfir Hollendinginn GeraldSibon sem skoraði 47 mörk í 141 leik fyrir Heerenveen á sínum ferli en hann var í þrígang á mála hjá liðinu. Alfreð getur smurt enn frekar ofan á metið því enn eru fimm deildarleikir eftir í Hollandi. Í heildina er hann búinn að skora 54 mörk í 63 leikjum fyrir Heerenveen síðan hann kom til liðsins frá Helsingborg fyrir tveimur árum.Guðlaugur Victor Pálsson var ekki í leikmannahópi NEC Nijmegen vegna leikbanns. Stigið er afar gott fyrir liðið í fallbaráttunni en þetta eru viss vonbrigði fyrir Heerenveen.Fjórir markahæstu leikmenn í hollensku deildinni í sögu Heerenveen:1. Alfreð Finnbogason, Íslandi - 48 mörk í 57 leikjum2. Gerald Sibon, Hollandi - 47 mörk í 141 leik (hættur)3. Afonso Alves, Brasilíu - 45 mörk í 39 leikjum (Al Gharafa)4. Bas Dost, Hollandi - 45 mörk í 66 leikjum (VfL Wolfsburg)
Fótbolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira