Viðkvæm mál 29. mars 2014 16:00
Sjónvarpsmaðurinn Ásgeir Erlendsson hefur umsjón með heimildaþáttaröðinni Íslenskir ástríðuglæpir sem hefur göngu sína á Stöð 2 sunnudaginn 27. apríl. Þættirnir verða fimm talsins og verða jafn mörg mál til umfjöllunar. Ásgeir segir það helst einkenna ástríðuglæpi að tilfinningatengsl eru á milli gerenda og þolenda „Í flestum tilfellum spilar tilfinningahiti stórt hlutverk. Oft er það svo að annar aðilinn telur á sér brotið og geta afleiðingarnar orðið ófyrirsjáanlegar. Í sumum málanna er bakgrunnur gerandans ekki hefðbundinn fyrir afbrotamann þar sem um venjulegt fjölskyldufólk er að ræða sem fyrirfram hefði ekki talist líklegt til að fremja glæp,“ segir Ásgeir. Hann segir mikla áherslu lagða á að nálgast viðfangsefnið af varfærni. „Við höfum tekið okkur góðan tíma í að framleiða þættina og erum að vanda okkur. Þetta eru allt mjög viðkvæm mál og við höfum nálgast þau af virðingu og nærgætni.“ En hvað vakti áhuga þinn á þessum málum? „Þegar ég lagði stund á sálfræði í Háskólanum í Reykjavík las ég mér nokkuð mikið til um ástríðuglæpi í réttarsálfræði. Það sem vakti áhuga minn þá var í raun sú staðreynd að oft er gerandinn ekki með hefðbundinn „prófíl“ afbrotamanns og gæti þess vegna verið ég eða þú.“ Þættirnir Mannshvörf og Óupplýst lögreglumál í umsjón Helgu Arnardóttur vöktu mikla athygli á Stöð 2 í fyrra. Íslenskir ástríðuglæpir verða í svipuðum anda en málin eru þó frábrugðin að því leyti að í öllum þáttunum er um manndrápsmál að ræða.
Íslenskir ástríðuglæpir Mest lesið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Áskorun Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Lífið samstarf Fleiri fréttir Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Sjá meira