Íslenski boltinn

Zato samdi við Þór

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Daníel
Farid Zato, Tógómaðurinn sem lék með Víkingi Ólafsvík í fyrra, er genginn í raðir Þórs á Akureyri.

Zato æfði með KR-ingum fyrr í mánuðinum en greindi frá því á Twitter-síðu sinni að samningar hefðu ekki náðst við vesturbæjarliðið.

Ekki kemur fram á heimasíðu Þórs hversu langan samning Zato gerði við félagið. Hann verður 22 ára á þessu ári en hefur einnig verið á mála hjá FH og HK hér á landi.

Hann spilaði alla 22 deildarleiki Víkings í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar.


Tengdar fréttir

Farid Zato æfir með KR

Tógomaðurinn Farid Zato kemur til landsins í dag og æfir með Íslandsmeisturum KR í eina viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×