UMTBS snýr aftur Gunnar Leó Pálsson skrifar 8. febrúar 2014 12:30 Ultra Mega Technobandið Stefán kemur fram á tónleikum í kvöld eftir tveggja ára pásu. mynd/hörður sveinsson
Við erum að fagna samningi sem við náðum við hagsmunaaðila innan norska tónlistarmarkaðarins,“ segir Sigurður Ásgeir Árnason söngvari hljómsveitarinnar Ultra Mego Technobandsins Stefáns, eða UMTBS. Um er að ræða norska kynningarfyrirtækið Indianer en það annast kynningarmál fyrir listamenn sem eru á tónleikaferðalagi um Noreg. Arctic Monkeys, Adele, Prodigy og Franz Ferdinand eru á meðal þeirra risanafna í tónlistarheiminum sem fyrirtækið hefur unnið með. UMTBS gaf fyrir jól út sína aðra breiðskífu sem ber nafnið ! og eru tónleikarnir í kvöld kallaðir útgáfutónleikar. „Þetta er rokkplata og er hún töluvert harðari en fyrri platan okkar,“ segir Sigurður. Með tilkomu samningsins við Indianer fer sveitin í tónleikaferð til Noregs í mars og aftur í sumar. UMTBS hefur að undanförnu skipt um stíl og hafa tveir nýir meðlimir bæst við hópinn undanfarin ár, þeir Vignir Rafn Hilmarsson á hljómborð og Jón Helgi Hólmgeirsson á gítar. „Við höfum skipt um stíl og höfum til að mynda hent öllum playbökkum og spilum núna allt live. Við erum orðnir rokkaðri.“ Fyrir voru í sveitinni ásamt ofangreindum þeir Arnþór Jóhann Jónsson hljómborðsleikari, Arnar Freyr Gunnsteinsson bassaleikari og Guðni Dagur Guðnason trommuleikari. Sveitin fór mikinn fyrir nokkrum árum. Plata þeirra, Circus, sat á topplistum víða og kom hljómsveitin fram víða um Evrópu. Hún hefur hins vegar látið lítið fyrir sér fara að undanförnu. „Meðlimir sveitarinnar kláruðu háskólanám og svona í millitíðinni.“ Eins og fyrr segir skipti sveitin nýlega um stíl en margir tengdu sveitina við stöðugt skemmtanahald og glamúrlifnað. Árið 2008 var umboðsmaður sveitarinnar meðal annars dæmdur í fangelsi fyrir eiturlyfjasmygl og bauð útgáfurisinn Universal sveitinni gull og gersemar ef hún skipti upp bandinu og héldi til Þýskalands á vit teknóævintýra, svo dæmi séu nefnd. „Þetta voru ruglandi tímar því við vorum svo ungir á þessu tímabili.“
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira