Innlent

Afla meira vatns fyrir stækkandi byggð

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Grunnsannsóknarholurnar eru gerðar til þess að staðsetja megi betur hvar hægt sé að finna sem heitasta vatnið.
Grunnsannsóknarholurnar eru gerðar til þess að staðsetja megi betur hvar hægt sé að finna sem heitasta vatnið.
Boranir fyrir heitu vatni hófust á Seltjarnarnesi í gær. Um hádegi í dag var búið að bora á 21 metra dýpi og gert er ráð fyrir að það taki um fjóra til fimm daga að ná 140 til 150 metra dýpi. En það er sú dýpt sem getur gefið vísbendingu um hvort heitt vatn sé að finna á svæðinu.

„Seltjarnarnesbær hefur verið í viðamiklum rannsóknum til að undirbúa að það þurfi að afla meira vatns því það á að fara bæta við byggðina,“ segir Dr. Hrefna Kristmannsdóttir, en hún er ein af þeim sem vinnur að rannsóknunum.

„Seltjarnarnesbær hefur verið í viðamiklum rannsóknum til að undirbúa að það þurfi að afla meira vatns því það á að fara bæta við byggðina,“ segir Dr. Hrefna Kristmannsdóttir.
Grunnsannsóknarholurnar eru gerðar til þess að staðsetja megi betur hvar hægt sé að finna sem heitasta vatnið. Það er ódýrara að sögn Hrefnu að gera nokkrar grunnar holur áður en farið er í að gera djúpar holur sem eru margfalt dýrari.

Dýpstu holurnar fyrir heitu vatni á Seltjarnarnesi eru um 2000 til 2800 metrar á dýpt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×