Safnaði fyrir græna kortinu á netinu Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 27. janúar 2014 09:00 Á brúðkaupsdaginn í Ráðhúsinu. Erik starfar sem arkitekt en Jóhanna er textílskapari og jógakennari. Mynd/Einkasafn „
Við hittumst fyrst í matarboði hjá sameiginlegum vinum í Kaupmannahöfn í nóvember árið 2010. Við hittumst síðan aftur í minni fyrstu New York-ferð í kringum áramótin 2011. Mér datt ekki í hug að þetta væri tilvonandi maðurinn minn. Við vorum svo ólík. Það var fyrst hálfu ári síðar er ég sá hann dansa og það kitlaði mig í magann og endaði í kossi. Þaðan hefur svo ást okkar þróast í gegnum miklar fjarlægðir á stundum,“ segir Jóhanna Guðleif um hvernig hún kynntist eiginmanni sínum, Bandaríkjamanninum Erik Gerlach. Þau voru saman í Danmörku í rúmlega ár eftir að þau ástarsamband þeirra hófst en þá þurfti Erik að yfirgefa landið eftir að hafa misst vinnuna. Þá tók við fjarsamband á milli tveggja heimsálfa sem tók á. „Þetta er búið að vera langt ferli og búið að kosta okkur mikla peninga með ferðum mínum hingað, launaleysi mínu á meðan ég er hér og sérstaklega í New York sem er mjög dýr borg. Er ég kom til New York í október í fyrra vissi ég að við þyrftum að komast að niðurstöðu sem í okkar tilfelli þýddi gifting eða ekki,“ segir Jóhanna, sem þurfti að fá græna kortið í Bandaríkjunum til að geta búið þar og starfað um ókomna framtíð. „Eftir að hafa farið í gegnum alls kyns rússíbana spurði ég mig hvort ég vildi yfirgefa manninn og byrja upp á nýtt annars staðar? Það gat ég ekki hugsað mér. Við höfðum rætt giftingu sem lausn en vorum bæði skíthrædd við það þar sem við töldum okkur ekki vera tilbúin, bara rúmlega hálf fertug. Rússíbaninn endaði síðan að lokum í stóru já-i í Ráðhúsinu í Brooklyn síðasta dag árs 2013. Það var stórkostlegur léttir og allt í einu skall á djúp ró hið innra,“ segir Jóhanna. Þá blasti umsóknarferlið um græna kortið við sem er afar dýrt og því ákváðu Jóhanna og Erik að stofna hópfjármögnunarsíðu á Donationto.com til að freista þess að safna þrjú þúsund dollurum, tæplega 350 þúsund krónum, til að eiga fyrir öllum þessum útgjöldum. „Einhvern veginn vissi ég að þetta myndi allt reddast eftir mörg ár í óvissu. Ég spurði mig hvernig ég gæti leyft flæðinu að koma til mín? Og með því að lifa í spurningunni kom svarið til mín: Biddu um hjálp! Ég fór í gegnum alls kyns hugarskvaldur áður en við fórum í gang með þetta. Væru ekki aðrir sem þyrftu meira á aðstoð að halda? Hvað ætli fólki hugsi? voru spurningar sem fóru í gegnum huga minn. Svo áttaði ég mig á að ég ætti alveg jafn mikinn tilverurétt og aðrir og ég myndi sjálf elska að styðja við bakið á vinum mínum í sömu aðstöðu. Og þar með var leikurinn hafinn,“ segir Jóhanna en hjónin náðu takmarkinu fyrir stuttu. „Það að finna svona mikinn stuðning úr öllum áttum; frá fjölskyldu, vinum og ókunnugum er ómetanlegur styrkur. Við erum óendanlega þakklát fyrir að þið gerið okkur svona létt að byrja nýtt líf saman,“ segir Jóhanna í sæluvímu. „Nú tekur við ferlið að sækja um græna kortið, svakalega mikið af pappírum og allsherjar læknisskoðun. Því fyrr sem við sendum inn umsóknina, því fyrr get ég búist við atvinnuleyfi. Síðan tekur við stóra viðtalið þar sem við þurfum að sanna okkur sem alvöru par. Þegar það er afstaðið getum við búist við græna kortinu inn um lúguna. Þá er ég frjáls fugl á ný og get ferjað allt mitt hafurtask sem bíður á Íslandi og í Danmörku hingað yfir til Ameríku. Við höfum hugsað okkur að vera hér allavega næstu tvö árin en maður veit aldrei hvað getur gerst.“
Mest lesið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Sjá meira