1,7 milljónir barna á vergangi eftir fellibylinn á Filippseyjum Þorgils Jónsson skrifar 21. nóvember 2013 14:35 Ástandið er víða slæmt á Filippseyjum, en dreifing hjálpargagna hefur gengið vel síðustu daga. Mynd/AFP
Neyðaraðstoð á hamfarasvæðunum í Filippseyjum eftir yfirreið fellibyljarins Hayian er í fullum gangi og hefur dreifing hjálpargagna miðað vel síðustu daga. Yfir 200.000 manns hafa nú aðgang að hreinu drykkjarvatni í Tacloban á Filippseyjum, en UNICEF og aðrar Sameinuðu þjóðanna hafa unnið að því ásamt stjórnvöldum að koma fólki á hamfarasvæðunum til hjálpar. Að auki hafa tæplega 50.000 manns í Cebu og Capiz fengið aðgang að drykkjarhæfu vatni, að því er fram kemur í tilkynningu frá UNICEF. Lyfjum og sjúkragögnum sem nýtast nærri 100.000 manns hefur auk þess verið dreift í Tacloban, Roxas og Ormoc og 18.000 manns hafa fengið nauðsynleg hreinlætisgögn. Auk þess hefur UNICEF komið upp salernisaðstöðu í neyðarskýlum á svæðinu. Í Guiuan, þar sem fellibylurinn gekk á land, hafa 10.000 manns fengið vatnsílát og töflur til að gera vatn öruggt til drykkjar. Í dag var svo sápum, salernispappír og öðru sem nauðsynlegt er til að tryggja hreinlæti og koma í veg fyrir útbreiðslu farsótta dreift til 1.000 fjölskyldna í Cebu. Miklu magni annarra nauðsynja verður útdeilt í dag og hefur verið dreift seinustu daga. Enn fleiri hjálpargögn eru auk þess á leiðinni. Fjöldi barna á Filippseyjum sem er á vergangi hefur nú náð 1,7 milljón og er mikil þörf á því að hefja umfangsmiklar bólusetningaraðgerðir til að koma í veg fyrir mislinga og aðra smitsjúkdóma. UNICEF hefur þegar hafist handa við að útvega bóluefni fyrir börn á hamfarasvæðinu öllu, auk þess sem börn munu fá A-vítamín til að efla ónæmiskerfi þeirra og draga úr líkum á sýkingum. Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi er enn í fullum gangi. Hægt er að leggja hjálparstarfi UNCEF lið með því að senda sms-ið BARN í númerið 1900 og styrkja þannig söfnunina um 1900 krónur. „Mikill gangur er í hjálparstarfinu og við náum sífellt að koma fleiri börnum til hjálpar. Þörfin er hins vegar gríðarleg og mikið starf óunnið,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, í tilkynningunni. „Allt okkar starf byggist á frjálsum framlögum og því er frábært hversu margir hafa lagt okkur lið nú þegar. Við vonum sannarlega að það haldi áfram.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Sjá meira