Bjarni Guðjóns: Það býr mikill fótbolti í þessum strákum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. október 2013 19:01
Bjarni Guðjónsson, nýr þjálfari Fram í Pepsi-deild karla, hefur safnað að sér ungum og frekar óþekktum leikmönnum að undanförnu á meðan liðið hefur á sama tíma misst reynslumikla menn. Gaupi kannaði hvað var í gangi hjá yngsta þjálfaranum í Pepsi-deildinni 2014. Á síðustu dögum hefur Bjarni fengið til liðs við Fram þá Ásgeir Marteinsson frá HK, Ósvald Jarl Traustason frá Breiðabliki, Alexander Már Þorláksson frá ÍA, Einar Bjarni Ómarsson frá KV, Arnþór Ari Atlason frá Þrótti og Hafsteinn Briem frá Haukum. En hefur Bjarni séð þá alla spila? „Ég hef séð eitthvað af þeim öllum, bæði á myndbandi og svo hef ég fylgst eitthvað með fótboltanum líka. Einhverjir þeirra eru komnir yfir tvítugt og þú ert ekki efnilegur langt fram eftir aldri. Það er komin reynsla í einhverja þeirra en aðrir eru ungir og efnilegir," sagði Bjarni Guðjónsson í viðtali við Guðjón Guðmundsson á Stöð2 í kvöld. „Það er skemmtilegt og ögrandi að fá tækifæri til að þjálfa þá. Það býr mikill fótbolti í þessum strákum og maður sér það að þeir þurfa að fá tækifæri. Það er ekki spurning um hvort að þeir séu góðir í fótbolta. Það er ekkert betra en að fá tækifæri og fá einhvern sem hefur trú á þér þegar þú ert ungur og efnilegur," sagði Bjarni Guðjónsson sem sjálfur fékk tækifærið sautján ára gamall með ÍA sumarið 1996. „Maður byggir ekki liðið bara upp á ungum og efnilegum strákum og það er alveg klárt mál. Við ætlum að reyna að hafa hryggjarstykkið í liðinu með meiri reynslu og hafa þar eldri og reyndari leikmenn. Við þurfum að vinna aðeins í því líka en einhverjir leikmenn eru nú líka fyrir í Fram. Þetta er fín byrjun hjá okkur," sagði Bjarni. Það er hægt að sjá fréttina hans Gaupa með því að smella hér fyrir ofan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira