Innlent

Reyndi að stöðva birtingu stuðningslistans

Sunna Valgerðardóttir skrifar
Berglind Svavarsdóttir
Berglind Svavarsdóttir
Lögmaður Guðnýjar Jónu Kristjánsdóttur, Berglind Svavarsdóttir, reyndi að koma í veg fyrir birtingu stuðningslista með 113 nöfnum í blaðinu Skránni á Húsavík árið 2000. Blaðinu var meðal annars hótað lögsókn en listinn birtist engu að síður.

„Við létum kyrrt liggja því við vildum ekki fara niður á þeirra plan og ákváðum bara að trúa því að réttlætið sigraði að lokum,“ segir Berglind. Hún bendir þó á að eitt af því sem listinn gerði að verkum var að miskabætur til Guðnýjar vegna nauðgunarinnar voru hækkaðar, en hann var lagður fram sem sönnunargagn í Hæstarétti og dómarar ákváðu að hækka bæturnar úr 400 þúsund í 500 þúsund „með vísan til óvenjumikillar félagslegrar röskunar“.

„Oft hef ég verið réttargæslumaður en ég hef aldrei upplifað svona, hvorki fyrr né síðar. Þetta var algjörlega absúrd mál í alla staði,“ segir Berglind Svavarsdóttir lögmaður.

Berglind starfaði sem réttargæslumaður Guðnýjar á Húsavík fyrir um fjórtán árum þegar hún kærði nauðgun og rak mál hennar fyrir dómstólum.

„Ég var alveg látin finna það að ég væri ekki réttum megin í málinu, en það var auðvitað ekkert miðað við það sem Guðný þurfti að þola. Hún stóð sig alla tíð eins og hetja.“

Berglind gefur lítið fyrir umræðuna undanfarna daga að svona gömul mál eigi ekki að ræða í dag og vísar meðal annars til orða Sigurgeirs Aðalgeirssonar í Fréttablaðinu í gær að málið væri of erfitt fyrir samfélagið til að vera að rifja það upp í dag.

„Auðvitað verður að ræða þetta mál því það verður öðrum víti til varnaðar. Þá er tilganginum náð.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×