Réðst á stúlku og hótaði lögreglumönnum lífláti 12. apríl 2013 16:05
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag nítján ára gamlan pilt, Egil Mikael Ólafsson, í tveggja ára fangelsi fyrir þrjú brot gegn valdstjórninni, líkamsárás, brot gegn vopnalögum og þjófnað. Hann var sakfelldur fyrir að hafa í byrjun desember á síðasta ári kastað grjóti í gegnum rúðu á veitingastað á Akranes og stolið þaðan sjö vínflöskum og tveimur bjórum. Síðar sama kvöld beit hann lögreglumann í handlegginn þegar verið var að færa hann í fangaklefa. Í lok janúar á þessu ári réðst hann á stúlku, sló hana fjórum til fimm sinnum með flötum lófa í andlitið, tók hana hálstaki og ýtti henni þannig að hún féll í gólfið. Þegar hann var handtekinn skömmu eftir líkamsárásina sló hann lögreglumann með krepptum hnefa í búkinn, reif í hár hans og ekki losað um takið fyrr en hjálp barst frá kollega hans. Þá hafði hann einnig í frammi lífslátshótnaði í garð lögreglumanna. Í lok febrúar var hann handtekinn fyrir utan veitingastað í miðbæ Reykjavíkur með eldhúshníf með 11,5 cm löngu hnífsblaði. Skömmu síðar sparkaði hann í lögreglumanna, sló hann hnefahöggi í kviðinn og hrækti á buxur hans þegar verið var að færa hann í fangaklefa. Þá hótaði hann einnig lögrelgumönnum lífláti. Egill Mikael játaði brot sín fyrir dómi og rauf skilorð með brotunum. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því 25. febrúar og dregst það frá tveggja ára fangelsisdómnum.
Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Erlent Fleiri fréttir Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Sjá meira