Lífið

Orðinn næstvinsælasti staðurinn í Evrópu

Sylvia Briem skrifar
Joe & The Juice í Kringlunni er orðinn einn af söluhæstu stöðum keðjunnar á tæplega mánuði.

Staðurinn er þekktur víða um heim og opnaði í Kringlunni í byrjun mánaðarins. Hann hefur notið mikilla vinsælda hér á landi og segir Unnar Helgi Daníelsson Beck, rekstrarstjóri staðarins, að hann hafi búist við svona góðum viðbrögðum. Eftir rúma viku var staðurinn í Kringlunni orðinn annar vinsælasti í Evrópu.

„Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt og krefjandi verkefni“ segir hann og bendir á að eitt af meginmarkmiðunum hafi verið að búa til skemmtilega stemmingu, eins og tíðkast á stöðum Joe & The Juice.

Spurður hversvegna staðurinn hafi náð svona miklum vinsældum, segir hann að hann sé líflegur. „Það er upplifun að labba inn útaf stemningu, tónlist og að sjálfsögðu eru djúsarnir og samlokurnar okkar að slá í gegn.“

Unnar segir að unnið sé að því að opna nýjan stað í Smáralind. „Hann mun ekki vera síðri, og ég hlakka til að sjá flesta þar“  segir hann að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.