Gagnrýnir Orkuveituna fyrir brennisteinsmengun nærri Waldorfskólanum Valur Grettisson skrifar 26. júní 2013 16:13 Hellisheiðavirkjun. Brennisteinsmengunin hefur farið yfir lögleg mörk nærri Waldorfskólanum, en þar er einnig sumarhúsabyggð. „
Þetta varðar almannahagsmuni,“ segir Gunnar I. Birgisson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðiflokksins í Kópavogi. Hann bókaði sérstaklega á fundi framkvæmdaráðs í dag að mengun í Lækjarbotnum frá Hellisheiðarvirkjun Orkuveitunnar, fari yfir viðmiðunarmörk, „sem er óásættanlegt,“ eins og segir í bókuninni sem Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúui Framsóknarflokksins lagði fram með Gunnari í dag. Bókunin kemur í kjölfar framlagningu minnisblaðs deildarstjóra eignadeildar Kópavogsbæjar þar sem gerð er grein fyrir nauðsynlegum endurbótum skólahúsnæðis Waldorfskólans í Lækjarbotnum, sem þurfa að koma til framkvæmda á þessu ári og næstu árum.Gunnar I. Birgisson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, gagnrýnir Orkuveitu Reykjavíkur harkalega vegna málsins,Gunnar gagnrýnir Orkuveitu Reykjavíkur harkalega vegna málsins, og segir að bæjaryfirvöld hafi þrýst á Orkuveituna fyrir nokkrum árum að hreinsa gufuna frá Hellisheiðavirkjun betur þannig að brennisteinsmengunin fari ekki yfir lögbundin mörk, eins og hefur gerst í gegnum tíðina. Þá stendur til að herða löggjöf um loftmengun en þau lög taka gildi næstu áramót. „Orkuveitan getur ekki hummað þetta lengur af sér,“ segir Gunnar og bætir við: „Það er algjölega óþolandi að Orkuveitan geri ekkert í þessu.“ Bæjarfulltrúarnir segja svo í lok bókunarinnar að það sé full ástæða til að krefjast þess að Orkuveitan bæti úr þessu vandamáli strax. Ekki náðist í umhverfisstjóra Orkuveitu Reykjavíkur við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Sjá meira