"Dröslaði mér næstum upp á topp" Marín Manda skrifar 16. ágúst 2013 17:00 Ásta Sveinsdóttir
Nafn? Ásta Sveinsdóttir ALDUR? 32 STARF? Eigandi suZushi og einn eigenda RoadhouseHvern faðmaðir þú síðast? Dóttur mína Hönnu sem er fjögurra ára. En kysstir? Sveinbjörgu vinkonu mína fyrir að vera svona frábær og fyrir að nenna að hanga með alveg síðan við vorum fimm. Hver kom þér síðast á óvart og hvernig? Kom sjálfri mér á óvart þegar ég náði að drösla mér „næstum“ upp á topp á Hvannadalshnúk í byrjun maí á þessu ári. Í fyrra hafði ég aldrei gengið á fjall en byrjaði áskorunina 52 fjöll árið 2013 í janúar.Hvaða galla í eigin fari ertu búin að umbera allt of lengi? Ég á það til að mikla hlutina fyrir mér og geri þar af leiðandi mér og öðrum lífið leitt. Þetta er eitthvað sem ég er markvisst að vinna í að láta af.Ertu hörundsár? Já, mjög svo. Ég er mikil tilfinningavera en ég er sem betur fer gædd þeim hæfileika að vera mjög fljót að jafna mig.Hvenær gerðirðu þig síðast að fífli og hvernig? Ég geri mig oft að fífli, enda alræmdur klaufi. Að detta í læki og polla, brjóta og bramla, rúlla niður stiga og þess háttar hefur verið mín sérgrein síðan ég man eftir mér. Þau eru svo mörg atvikin að þetta rennur bara saman í eitt.Hringirðu stundum í vælubílinn? Það er ekki í boði! Bíta á jaxlinn og brosa í gegnum tárin er vænlegra. Tekurðu strætó? Nei, ég geri það alltof sjaldan og þá helst til skemmtunar fyrir dóttur mína.Hvað eyðirðu miklum tíma á Facebook á dag? Ég held úti Facebook-síðum fyrirtækjanna minna svo ég eyði mjög nauðsynlegum tíma þar og svo allt of miklum óþarfa tíma.Ferðu hjá þér þegar þú hittir fræga eða heilsarðu þeim? Ég er ekki týpan til að hlaupa fræga uppi. Brosi kannski frekar ef ég næ augnsambandi líkt og við flesta aðra. Enda frægir ekkert öðruvísi en hver annar.Hvað ætlarðu alls ekki að gera um helgina? Ég ætla ekki að vera löt! Ekki vera innan um fólk í vondu skapi, ekki borða vondan mat og ekki láta mér leiðast.
Mest lesið „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Lífið Ragga Holm og Elma giftu sig Lífið Hlaupadellan varð að fatamerki: „Ég er giftur götunni“ Tíska og hönnun Gervigreindarfyrirsæta í Vogue vekur ugg Tíska og hönnun Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Lífið „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Lífið Fréttatía vikunnar: Stórtónleikar, NBA-stjarna á klakanum og heimsfræg lesbía Lífið Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Lífið Ása Ninna kveður Bylgjuna Lífið Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Lífið Fleiri fréttir Ragga Holm og Elma giftu sig „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Líf og fjör í Reykholti í Borgarfirði um helgina á Reykholtshátíð „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Fréttatía vikunnar: Stórtónleikar, NBA-stjarna á klakanum og heimsfræg lesbía Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Ása Ninna kveður Bylgjuna Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina „Við viljum alls ekki fá of marga“ Mannauðsstjórinn segir einnig upp Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Litríkur karakter sem var engum líkur Hulk Hogan er látinn Fyrsta stiklan úr miðaldaþáttum Balta Rene Kirby er látinn Pamela smellti kossi á Neeson Beittu listamönnum sem leynivopni í kalda stríðinu Hlutabréfin rjúka upp eftir að Sweeney fór í gallabuxurnar „Grunar að hann hafi bara vitað upp á hár hvað væri að fara að gerast“ Stjörnubarnið komið í heiminn Telja Ozzy endurfæddan sem Aquaman Skotheld og skemmtileg hlauparáð Devin Booker á Íslandi Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“ Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann Tuttugu ára aldursmunur og ástin blómstrar Sjá meira
Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“