Ódýrasta gamanþáttaröð Íslandssögunnar 16. ágúst 2013 14:30
Einn vinsælasti grínisti landsins undanfarin ár verður í aðalhlutverki á í kvöld í gamanþættinum Bara grín á Stöð 2. Um er að ræða Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktan sem Steinda Jr. Í þessum sprenghlægilegu og skemmtilegu þáttum rifjar Björn Bragi Arnarsson upp brot úr bestu gamanþáttum Stöðvar 2 með myndbrotum og viðtölum. Fyrsti þáttur Steinda Jr. var sýndur vorið 2010 og sló strax í gegn. Sjálfur segir hann að vinsældir þáttanna hafi komið þeim á óvart. "Við vissum í raun ekkert hvernig þessum þáttum yrði tekið. Vinsældir þeirra komu okkur því þægilega á óvart. Í þáttunum vorum við að búa til grín sem Íslendingar höfðu ekki áður séð í innlendum grínþáttum." Eftir velgengni fyrstu seríunnar voru tvær aðrar búnar til og sýndar á Stöð 2 árin 2011 og 2012. Hann segir að gaman hafi verið að rifja upp þessa tíma með Birni, sérstaklega frá fyrstu seríunni. "Það sem stendur upp úr varðandi fyrstu seríuna er hversu rosalega ódýr hún var í framleiðslu. Ég get fullyrt að aldrei áður hefur verið framleidd jafn ódýr grínþáttaröð á Íslandi. Hún var líka mjög hrá og við nýttum skemmtilegar og óvenjulegar aðferðir svo þetta gengi allt upp hjá okkur." Að eigin sögn er hann mikill aðdáandi eldri íslenskra grínþátta og hefur horft á þá flesta. "Ég er algjört nörd þegar kemur að íslenskum grínþáttum, sérstaklega eldri þáttum eins og Radíus, Limbó, Örninn er sestur og Fastir liðir eins og venjulega. Þeir þættir sem höfðu þó mest áhrif á mig voru Tvíhöfði og Fóstbræður. Það var alltaf gaman að mæta í skólann daginn eftir Fóstbræður og ræða þáttinn við vinina, enda stúderuðum við þessa þætti mjög mikið." Bara grín verður sýndur á Stöð 2, í kvöld klukkan 20.15.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Sjá meira