Danshátíð gegn barnabrúðkaupum Ólöf Skaftadóttir skrifar 10. október 2013 21:00
Danshátíð á vegum UN Women verður haldin í annað sinn í Kramhúsinu í kvöld, á alþjóðlegum degi stúlkubarnsins. „Við ætlum að tileinka hátíðarhöldin í ár baráttunni gegn barnabrúðkaupum,“ segir Álfheiður Anna Pétursdóttir, verkefnastjóri hjá UN Women. „Dagurinn er haldinn til að vekja athygli á réttindum stúlkna og áskorunum og mannréttindabrotum sem eiga sér stað um allan heim. Þannig viljum við vekja athygli á deginum og fagna því sem þegar hefur unnist með því að dansa og gera eitthvað skemmtilegt,“ segir Álfheiður. UN Women á Íslandi hafa farið mikinn gegn barnabrúðkaupum síðastliðið ár. „Barnabrúðkaup eru gríðarlega stórt vandamál,“ útskýrir Álfheiður. „Stúlkur eru tilneyddar í hjónaband á þriggja sekúndna fresti um víða veröld.“ UN Women vinna alla jafna að fjáröflun um allan heim sem snýr að jafnrétti og valdeflingu kvenna. „Við erum að styrkja verkefni í Afríku sunnan Sahara, Suður- og Suðaustur-Asíu, í Miðausturlöndum og Karíbahafinu svo eitthvað sé nefnt,“ segir Álfheiður jafnframt. Það eru fjórir þaulreyndir kennarar sem koma til með að sjá um danskennsluna í kvöld. „Ég er einn af kennurunum og kenni afródans, Margrét Erla Maack kennir Beyoncé-dans, Þórdís Nadia Semichat kennir magadans og Kristín Bergsdóttir kennir suðræna sveiflu. Við vildum taka dansstíla sem víðast að úr heiminum og reyna að sameina það svolítið þeim alþjóðlega vinkli sem við erum með í okkar starfi. Við vildum líka bjóða upp á sem flest svo að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir Álfheiður og hvetur sem flesta til að láta sjá sig og styrkja gott málefni.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Tónlist Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Bíó og sjónvarp Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Sjá meira