Ný kynslóð farsímakerfa Gunnar Leó Pálsson skrifar 10. október 2013 00:00 Munurinn er mikill á 3G og 4G. MYND/JÓNAS
4G, fjórða kynslóð farsímakerfa, finnst um allan heim en þó er misjafnt á hvaða tíðniböndum 4G-þjónustan er veitt og því ekki sjálfgefið að fólk geti nýtt sér þjónustuna hvar sem er. Útbreiðslan er líka misjöfn eftir landsvæðum og er sem dæmi mun meiri í Bandaríkjunum en í Evrópu. Fyrir notendur liggur munurinn á 3G og 4G fyrst og fremst í gagnaflutningshraðanum, sem er margfalt meiri í 4G-kerfi en í 3G-kerfi. Niðurhal og upphal á gögnum verður hraðara og notkunarmöguleikar snjalltækjanna verða meiri. Hraðamunurinn getur orðið allt að tífaldur. 4G-tæknin gerir notendum kleift að ná allt að 100 Mb/s hraða en 3G-tæknin allt að 42 Mb/s hraða. Þá er viðbragðið í 4G-kerfinu mun hraðara og upplifunin fyrir viðskiptavininn mun betri. 4G-þjónusta er þegar í boði á stórum svæðum á Suður- og Vesturlandi, á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Símafyrirtæki landsins hafa lagt ríkasta áherslu á þjónustu við svæði þar sem þörfin er talin mest. Þetta á til dæmis við um stór sumarhúsasvæði sem komust í gott netsamband þegar Vodafone hóf sína 4G-þjónustu síðastliðið sumar en töluvert er í að 4G-þjónusta verði alls staðar í boði. Enn sem komið er eru tiltölulega fá 4G-símtæki í notkun hér á landi, eða hjá um 2 prósentum viðskiptavina. Það er hins vegar að breytast hratt, enda eru mörg ný tæki með 4G-virkni. Verð á gagnamagni er óháð því hvaða tæki viðskiptavinir velja að nota. Hins vegar er viðskiptavinur með 4G-snjalltæki líklegur til að nota meira gagnamagn en viðskiptavinur með 3G-snjalltæki, sem getur aukið kostnaðinn. Fjölmörg góð tæki eru til sölu hjá símafyrirtækjum landsins sem styðja 4G. Mikið hefur borið á umræðu um af hverju iPhone 5 virkar ekki í 4G-kerfinu hér á landi. Svarið er einfaldlega að Apple þarf að gefa grænt ljós á þá notkun en það hefur enn ekki gengið eftir.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira