Vissi ekki að þú gætir verið svona vond Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 9. október 2013 18:00 Rúnar Freyr Gíslason og Þóra Karítas Árnadóttir í Ástríði. „
Bæði heimilislæknirinn og mamma hafa sagt við mig: „Ég vissi ekki að þú gætir verið svona vond!““ segir leikkonan Þóra Karítas Árnadóttir sem fer með hlutverk hinnar ísmeygilegu Fanneyjar í sjónvarpsþáttunum Ástríði. Þóra segir Fanneyju vera karakter sem áhorfendur elski að láta fara í taugarnar á sér. „Ég gekk langt í þeirri nálgun í fyrri þáttaröðinni og fannst ég komast í karakter Fanneyjar þegar ég setti upp vissan augnsvip sem stundum sést á konum þegar þær mæla út klæðaburð og útlit annarra kvenna. Ég ákvað svo að Fanney væri viðkvæm og lítil inni í sér og fyrir vikið sést af og til inn í kviku,“ útskýrir Þóra.Í lok síðustu þáttaraðar af Ástríði urðu þau Fanney og Sveinn Torfi, sem leikinn er af Rúnari Frey Gíslasyni, par. Svo skemmtilega vill til að Rúnar og Þóra hafa áður leikið par sem stóð í skilnaði í Rétti. „Fanney og Sveinn Torfi náðu saman því þau eru bæði ýktar persónur með tilbúnar hugmyndir um ástarsambönd sem helst eiga að vera eftir uppskrift úr amerískri ástarvellu með tilheyrandi listum yfir rómantískar gjafir og annað sem á að koma á óvart,“ segir Þóra og fer varlega í að láta of mikið uppi um samskipti Fanneyjar og Sveins sem ganga heldur brösuglega í byrjun nýju þáttaraðarinnar. „Raunveruleikinn virðist svo vera annar en í rómantískri bíómynd og kannski eru Fanney og Sveinn Torfi á einhvern hátt dæmi um slæmar afleiðingar þess þegar fólk reynir að breyta eða stjórnast í hvort öðru því töfrarnir felast í því sem fyrst var fallið fyrir. Það á ýmislegt eftir að koma í ljós sem ég vil ekki láta uppi en þau fara saman í heilmikið þroskaferðalag. Persónur þeirra fá að sýna galla sína og eru eftir því mannlegar,“ útskýrir Þóra. Rúnar Freyr segist einnig hafa fengið sterk viðbrögð við túlkun sinni á Sveini Torfa. „Vinir mínir eru farnir að segja: „Djöfuls fáviti ertu í þessum þáttum!“ Þá segi ég sem satt er að þetta sé nú bara rétt byrjunin og að hann eigi eftir að ganga svo langt að fleiri en vinir mínir muni illa þola þennan gaur. Á sama tíma er eitthvað í fari hans sem maður elskar því það er eitthvað af Sveini Torfa í okkur öllum,“ segir Rúnar og brosir að öllu saman. Hann segir þau Þóru hljóta að passa vel saman úr því þeim sé parað saman trekk í trekk. „Þó verður að benda á að söguhetjurnar eru ekki endilega líkar okkur Þóru og þótt annað sjálf okkar eigi vel saman er ég ekki viss um að það gengi upp í raunveruleikanum því bæði erum við hamingjusamlega lofuð öðrum,“ segir Rúnar sem nýtur þess mjög að leika á móti Þóru sem hann segir æðislega. „Þegar ég fór í prufur fyrir Ástríði sagði ég við Silju leikstjóra að það mætti alls ekki gera grín að Sveini Torfa og að sá sem léki hann yrði að standa með honum í blíðu og stríðu. Hann yrði að vera einlægur í að vera misheppnaður, annars yrði Sveinn Torfi hvorki sannfærandi né grátbroslegur. Lykillinn felst í því að vera einlægur og skapa alvöru söguhetju enda er mikið af sjálfum mér í Sveini Torfa, þótt ég ætti kannski ekki að viðurkenna það,“ segir Rúnar og skellir upp úr.
Mest lesið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Lífið „La La Höndin“ úr sögunni Lífið Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Lífið Ali G snýr aftur Bíó og sjónvarp Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Lífið Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið Lífið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Lífið Myndaveisla: Götubitinn í Hljómskálagarðinum Lífið samstarf Fleiri fréttir „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Sjá meira