Vinsælustu þættir Stöðvar 2 frá upphafi 9. október 2013 17:15 Fóstbræður er uppáhaldsþáttur flestra álitsgjafanna.
Stöð 2 fór í loftið þann 9. október 1986 og á því 27 ára afmæli í dag. Af því tilefni voru nokkrir valinkunnir álitsgjafar fengnir til að nefna þá íslensku sjónvarpsþætti í gegnum tíðina sem eru í uppáhaldi. Þættirnir Fóstbræður eru ótvíræðir sigurvegarar. Þetta sögðu álitsgjafar um Fóstbræður sem flestir völdu einn besta þátt Stöðvar 2 frá upphafi."Besti sketsa þáttur sem komið hefur í íslensku sjónvarpi og lifir enn góðu lífi.""Stórskemmtilegir grínþættir með hárbeittum húmor.""Eflaust bestu grínþættir sem framleiddir hafa verið á Íslandi. Þrátt fyrir að tólf ár séu liðin frá endalokum þáttanna er fólk enn að vitna í þá og hlæja.""Þeir kenndu mér að hlæja svona djúpt úr maganum. Ég fer í hálfgerða klessu þegar ég hitti grínarana þaðan af tómri lotningu og lol-i og þegi bara því það eina sem mér dettur í hug að segja er bara: Takk Sensei, þú kenndir að hlæja með maganum. Sem væri sjaldan viðeigandi en alltaf krípi.""Bestu sjónvarpsþættir Íslandssögunnar. Langt á undan sinni samtíð í gríni, sem skýrir kannski hversu vel þættirnir endast. Glímugengið rúls!"2. Annar vinsælasti þátturinn var Næturvaktin"Tvær af eftirminnilegustu persónum íslenskrar sjónvarpssögu, Georg og Ólafur Ragnar, fóru á kostum.""Næturvaktin, þáttaröð sem maður geymir í hjarta sér - um mannlegan kærleik og harmleik" 3. Í þriðja sæti var Heilsubælið "Hallgrímur Ormur, Dr. Saxi og félagar stóðu vel fyrir sínu.""Fyrstu íslensku sjónvarpsþættirnir sem framleiddir voru fyrir Stöð 2. Spítali sem enginn myndi vilja leggjast inni á en ódauðlegar persónur vekja hlátur enn þann dag í dag.""Heilsubælið í Gervalbæli var þáttur sem við horfðum á í náttfötunum um helgar; sem krakki var þessi ógeðslegi matur í mötuneyti heilsubælisins líklega eitthvað á við Sveppi og Auddi og áskorunin."4. Í fjórða sæti var barnaþátturinn Með Afa"Sem barn þá missti ég aldrei af Afa, ég meira að segja gerði mér lítið fyrir og sendi honum pakka svo hrifinn var ég af honum. Upphafslagið er ógleymanlegt.""Barnaþáttur sem þurfti ekki á trúðfíflum og trampólíni að halda. Ekkert rugl enginn sveppagangur, bara notalegur kall með páfagauk.""Ég vorkenni börnum sem fæddust eftir að morgunsöngurinn kom til sögunnar. Og ég lít enn þá á Örn Árnason sem þriðja afann í lífi mínu."5. Fimmti vinsælasti þátturinn var Fangavaktin."Vaktarþríleikurinn er í heild ótrúlega vel heppnaður. Það var vel við hæfi að gengið á bakvið þættina hafi toppað sig með síðustu seríunni en hún tók allt sem gerði fyrri seríur góðar og blandaði saman í stórkostlega skemmtilegan graut.""Þótt þessir Vaktaþættirnir séu gerólíkir Fóstbræðrum að forminu til þá gefa þeir þeim lítið eftir. Kostulegir karakterar og sjaldan hefur það verið jafnóeftirsóknarvert að vera með fimm háskólagráður." Álitsgjafar Sara McMahon, blaðamaður Sverrir Bergmann, tónlistarmaður Freyr Bjarnason, blaðamaður Andrés Jónsson, almannatengill Ylfa Kristín K. Árnadóttir, almannatengill Júlía Margrét Alexandersdóttir, blaðamaður Saga Garðarsdóttir, leikkona Atli Fannar Bjarkason, framkvæmdastjóri Bjartrar framtíðar
Mest lesið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira