Arnar Tómasson: Tilvalið að gefa gömlu skærin Sara McMahon skrifar 3. október 2013 08:00 Arnar Tómasson hárgreiðslumeistari stóð fyrir söfnun á skærum. Skærin voru send til Suður-Afríku í gær og eru ætluð götubörnum sem hafa hug á að stunda hárgreiðsluiðn. Fréttablaðið/pjetur „
Þetta er samvinnuverkefni Meistarafélags hársnyrta og Intercoiffure, alþjóðlegra samtaka sem hafa stofnað hárgreiðsluskóla hér og þar um heiminn, meðal annars þrjá í Brasilíu, einn í Rúmeníu og núna einn í Suður-Afríku. Mér þótti tilvalið að fá íslenskt hárgreiðslufólk til að gefa gömlu skærin og senda þau út því unga fólkið þarf verkfæri til að geta sinnt iðju sinni,“ segir Arnar Tómasson, hárgreiðslumeistari og varaformaður beggja samtakanna. Hann tók á móti gömlum skærum sem send voru út til Suður-Afríku í gærmorgun. Þar verða þau afhent suðurafrískum götubörnum sem hafa hug á að nema háriðn. „Skólarnir er ætlaðir götubörnum sem hafa komist í kast við lögin. Intercoiffure gerir þeim kleift að læra iðn og þannig finna sér starf til að hafa í sig og á,“ segir Arnar sem hefur starfað sem hárgreiðslumaður frá árinu 1987.Hér má sjá öll skærin.Fréttablaðið/PjeturSöfnunin hófst á mánudaginn fyrir viku og lauk í gær. „Meðlimir beggja félaga skiluðu skærum inn til mín, þau voru síðan send til Danmerkur í morgun [gær] og fara þaðan áfram til Suður-Afríku. Þar verða skærin yfirfarin, brýnd og gerð nothæf að nýju. Það muna flestir eftir sínum fyrstu skærum og það er gaman að geta gefið áfram.“ Aðspurður segist Arnar ekki hafa getað látið fyrstu skærin sín af hendi til verkefnisins. „Meistari minn gaf mér mín fyrstu skæri, en því miður á ég þau ekki lengur. Það var brotist inn á stofuna mína fyrir þremur árum síðan og öllu rænt, þar á meðal umræddum skærum,“ segir hann að lokum.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira